Krleikskorn dagsins

Ég hætti að gagnrýna eigin gjörðir og annarra.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Erlendar bækur hjá Amazon
BreakthroughBreakthrough
- eftir Suzanne Somers

Í einu orði sagt FRÁBÆR bók þar sem Suzanne talar við lækna sem nota framúrstefnulegar nýjungar við meðhöndlun sjúklinga. Þar er fjallað um hormónabúskap líkamans, skjaldkirtilsvandamál, hvernig bæta má minnið, uppgötva mögulega sykursýki á frumstigi og margt fleira.


hypothyroidismHypothyroidism Type 2: Epidemic
- eftir Mark Starr

Vanvirkni í skjaldkirtli af tegund 2 virðist vera að verða að "farsótt" einkum meðal kvenna. Dr. Stark hefur stundað rannsóknir og lækningar á þessum sjúkdómi og kemur hér með framúrstefnulegar nýjungar og leiðir til bata.


Practically GreenPRACTICALLY GREEN - Your Guide to Ecofriendly Decision Making
- eftir Micaela Preston

Yfirgripsmikil bók meðupplýsingum um hvernig best er að haga sér til að vera bæði grænn og umhverfisvænn þegar kemur að innkaupum, en gæta þess jafnframt að endar náisaman í rekstri heimilisins. Með tilvísunum í margar vefsíður, sem veita bæðiupplýsingar og selja vöru og þjónustu.

Easy Green LivingEASY GREEN LIVING - The Ultimate Guide to Simple, Eco-Friendly Choices for You and Your Home
- eftir Renée Loux

Renée er þekkt í Bandaríkjunum, er með sinn eigin sjónvarpsþátt og hefur lengi unnið að því að grænna ogumhverfisvænna umhverfi. Bókin er með mikið af upplýsingum, leiðbeiningum um hvernig búa á til krem og snyrtivörur, mat og margt fleira.

Smart_Mamas_Green_Guide_Simple_Steps_to_Reduce_Your_Childs_Toxic_Chemical_ExposureSMART MAMA'S GREEN GUIDE: Simple Steps to Reduce Your Child's Toxic Chemical Exposure
- eftir Jennifer Taggart

Mikilvægbók fyrir allar mömmur sem vilja vernda börnin sín gagnvart eiturefnum semfinna má bæði í fæðu, vatni og lofti – svo og í leikföngum, fatnaði og ýmsum vörum fyrir börn.

Squeaky_Green_The_Method_Guide_to_Detoxing_Your_HomeSQUEAKY GREEN: The Method Guide to Detoxing Your Home - í gormabindingu
- eftir Eric Ryan og Adam Lowry

Í bókinni er hægt að læra um auðveldarleiðir til að afeitra heimilið og gera það umhverfisvænna til að búa í, enmikið af þeirri mengun sem við verðum fyrir á sér stað innandyra á eigin heimili.

What_to_EatWHAT TO EAT?
- eftir Marion Nestle

Bókin er kannski meira ætluð sem handbók fyrir ameríska stórmarkaði, þar sem farið eryfir kjötborðið, fiskborðið og svo aðrar vörur, til að leiðbeina hvað er gottað kaupa og hvað ekki. Þar sem mikið af matvörum á Íslandi er hins vegar innflutt getur hún komið sér afar vel.

Big_Green_Purse_Use_Your_Spending_Power_to_Create_a_Cleaner_Greener_WorldBIG GREEN PURSE – Use Your Spending Power to Create a Cleaner, Greener World
– eftir Diane MacEachern

Yfirgripsmikil bók, þar sem hún fer meðal annars inn á það hvaða áhrif eiturefni í umhverfinu eru að hafa á innkirtla- og hormónakerfi okkar – og bendir á að það eru konur sem stjórna innkaupum heimilisins og geta gert mestar breytingar á því hvað keypt er og hvort það styður þá við umhverfivernd.

Not_Just_a_Pretty_Face_The_Ugly_Side_of_the_Beauty_IndustryNOT JUST A PRETTY FACE – The Ugly Side of the Beauty Industry
– eftir Stacy Malkan

Frábær bók byggð á reynslu og rannsóknum um hvaða áhrif snyrtivörurnar sem við TREYSTUM hafa á líkama okkar, hvaða hættulegu innihaldsefni eru í þeim og hvaða sjúkdómum þau geta valdið.
Healthy_Child_Healthy_World_Creating_a_Cleaner_Greener_Safer_HomeHEALTHY CHILD, HEALTHY WORLD – Creating a Cleaner, Greener, Safer Home
– eftir Christopher Gavigan

Fjalla um það hvað ber að varast, ekki bara eftir að barnið er fætt, heldur einnig áður en það fæðist; um hætturnar og eiturefnin í umhverfinu og áhrif þess á heilsu barna þar sem öll líffæri eru að vaxa og dafna og vefirnir draga í sig allt úr umhverfinu. Ef þú elskar barnið þitt þá kynnir þú þér efni þessarar bókar.
Go_Green_Live_Rich_50_Simple_Ways_to_Save_the_Earth_and_Get_Rich_TryingGO GREEN, LIVE RICH
– eftir David Bach

Frekar yfirgripsmikil en þó hnitmiðuð bók sem fjallar um hvað hægt er að gera til að lifa grænna og umhverfisvænna lífi. Höfundurinn býr í New York og seldi bílinn sinn og notar nú bara hjól eða almenningssamgöngur innan borgarinnar.
12_Steps_to_Raw_Foods_How_to_End_Your_Dependency_on_Cooked_Food12 STEPS TO RAW FOODS: How to End Your Dependency on Cooked Food
– eftir Victoria Boutenko – formáli skrifaður af Gabriel Cousens

Bók þar sem farið er í gegnum allt ferlið, frá því áhugi á hráfæði kviknar og hvernig hægt er að gera það að daglegum lifnaðarháttum. Gabriel Cousens er mjög virtur og hvetur þá sem dvelja á setrinu hans í Arizona til að borða einungis hráfæði. Margir Hollywood leikarar sækja til hans meðal annars Woody Harrelson.

Eat_Right_for_Blood_TypeEAT RIGHT 4 YOUR TYPE: The Individualized Diet Solution to Staying Healthy, Living Longer & Achieving Your Ideal Weight
– eftir Peter J. D‘Adamo og Catherine Whitney

Frábær bók þar sem þú lærir grunninn í blóðflokkamataræðinu og af hverju blóðflokkarnir eru mismunandi og þurfa því mismunandi fæði til að halda heilbrigði. Við gáfum þessa bók á sínum tíma út hjá Leiðarljósi, en hún hefur ekki verið fáanleg lengi.

Live_Right_for_Your_TypeLIVE RIGHT 4 YOUR TYPE
– eftir Peter J. D‘Adamo og Catherine Whitney

Í þessari bók sem kom út nokkrum árum síðar en EAT RIGHT 4 YOUR TYPE, byggir D‘Adamo á reynslusögum, frekari rannsóknum og tekur blóðflokkamataræðið einu skrefi lengra og þrepaskilgreinir það eftir því hvort þú þarft að ná bata eftir veikindi eða ert bara að viðhalda styrk líkamans. Þessi bók var líka gefin út af Leiðarljósi, en hefur ekki verið til á íslensku lengi.
Delivering_HappinessDELIVERING HAPPINESS: A Path to Profits, Passion, and Purpose
– eftir Tony Hsieh

Einhver athyglisverðasta og nýstárlegasta bók um fyrirtækjarekstur og árangur í viðskiptum sem ég hef lesið. Gefur alveg nýja mynd af því hvaða árangri er hægt að ná með því að hafa hamingjuna að leiðarljósi. Hlustaði nýlega á Tony Hsieh flytja fyrirlestur og hreifst af.
Outliers_The_Story_of_SuccessOUTLIERS
– eftir Malcolm Gladwell

Ein af betri bókum Gladwells, sem er á alþjóðlegum metsölulistum. Góð fyrir alla sem reka fyrirtæki.
Aðrar vörur á Amazon
GreenPanGreenPan pottar og pönnur
– húðaðir með Thermolon nýrri tækni sem fyrst kom fram árið 2007. Húðunin á pönnunum og pottunum er án PTFE. Þau teljast því afar umhverfisvæn við alla eldun og spara auk þess rafmagn.
Í efnafræði er poyltetrafluoroethylene, skammstafað PTFE, gerfiefnið sem best er þekkt undir nafninu sem DuPont gaf því – þ.e. Teflon.
 
tilvitnun6.png