Kærleikskorn dagsins

Ég elska mig eins og ég er.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Uppskriftir frá Snædísi Róberts
Lífrænn grjónagrautur.

Grjónagrautur er ódýr, hollur, góður og barnvænn matur. Það eru margar útfærslur til af honum. Mín er svona:

1/2 bolli íslenskt bygg
1/2 bolli lífræn hýðisgrjón (ég kaupi þau í 10kg pokum í Fjarðarkaupum)
2 bollar vatn

Þetta læt ég bullsjóða í smá stund og slekk svo undir, oft kvöldinu áður, eða um morguninn. ef ég ætla að elda um kvöldið. Svo fer líter af mjólk, soja eða hrís er líka góð og látið malla þar til fer að þykkna, set svo teskeið af vanillusykri, teskeið af salti og 1/2 bolla rúsínur og læt sjóða með síðustu mínúturnar. Ber þetta fram með lifrapylsu og mér finnst alveg jafngott að strá bara kanel yfir, óþarfi að hafa sykur.

 
Rúgbrauð

Þetta brauð er mjög vinsælt á mínu heimili. Ég læt oft einn bauk af Agave sýrópi (425g) duga í uppskriftina til að hafa hana dálítið hollari.

2 bollar heilhveiti
4 bollar rúgmjöl
1 líter súrmjólk
500g sýróp
3 tsk matarsódi
3 tsk salt

Öllu hrært saman og sett í mjólkurfernur, mackintosh dós eða í steikarpottinn með bökunarpappír undir og yfir. Bakað við 100 gráður í 9 stundir.

 


tilvitnun3.png