|
Miðvikudagur, 25. Ágúst 2010 13:41 |
|
Guðrún G. Bergmann
Máltækið "Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi" kom upp í huga minn í gær. Kannski var hlassið ekki svo þungt, nema þá helst í huganum. Upphafið var eiginlega að vinur minn bauð mér með sér í gönguferð og við röltum um Heiðmörkina í dásamlegri blíðu, tíndum bláber og ræddum um andlegan þroska okkar og þær breytingar sem við erum bæði að ganga í gegnum í eigin lífi.
Samræður okkur leiddu til þess að ég sá ákveðið mál sem ég var stöðnuð með í allt öðru ljósi og var mun léttstígari á bakaleiðinni. Dagurinn vatt svo úr sér á undursamlegan máta, með fullt af nýjum tækifærum og áætlunum, sem ég verð að segja að ég er afar spennt fyrir - eiginlega allt vegna þessa eina samtals.
Stundum er gott að ræða við vini sína um eigin hindranir, því þeir sjá eða heyra yfirleitt það sem við hvorki sjáum né heyrum sjálf.
|
|
|
Þriðjudagur, 10. Ágúst 2010 11:40 |
|
Guðrún G. Bergmann
Skyndilega var fætinum kippt undan mér í orðsins fyllstu merkingu síðastliðinn laugardag og ég komin inn á spítala. Ég var nýkomin frá því að sækja vinkonu mína frá Bandaríkjunum út á flugvöll, en planið var að eyða vikunni saman á ferð um landið. Öllu var hins vegar umsnúið þegar upp kom sýking í ökklalið sem engin skýring finnst ennþá á.
Þótt ég hafi nokkrum sinnum um ævina þurft að dvelja á spítala í lengri eða skemmri tíma, þá er orðið langt um liðið síðan ég var síðast lögð inn. Mikið hef ég þó lært um heilsu og heilbrigði í gegnum árin og þekki líkama minn og skilaboð hans nú betur en ég gerði á árum áður. Því tek ég því sem guðirnir í hvítu sloppunum segja alltaf með ákveðnum fyrirvara og leita yfirleitt eftir áliti frá fleirum, fer eftir eigin innsæi eða les mér til, t.d. á Netinu. Ég spyr líka fleiri spurninga en ég gerði þegar ég var yngri - og náttúrulyfin fylgja mér á spítalann, til að styðja við aðra meðferð.
|
|
Verðmætin sem í kringum okkur eru |
|
Sunnudagur, 23. Maí 2010 09:16 |
|
Höf.: Guðrún G. Bergmann Ég geng um Grafarholtið alla morgna vikunnar og nýt þess að virða fyrir mér vorið og sjá hvernig allt líf er að kvikna. Ilmurinn af öspunum sem eru að laufgast er höfugur og birkið ber alltaf með sér fyrirheit um dásamlega sumardaga og -nætur. Lerkið hefur komið mér á óvart, því það er svo fallegt þegar það fer allt í einu að laufgast og mér flaug í hug einn daginn hvort ekki verði lerkisveppir í kringum þessi flottu tré með haustinu. Vel þess virði að kanna það.
|
|
Miðvikudagur, 21. Apríl 2010 01:08 |
|
Í Bandaríkjunum fagna menn því í dag að 40 ár eru liðin síðan Earth Day eða Dagur Jarðar var fyrst haldinn þann 22. apríl 1970. Hugmyndina að honum átti öldungadeildarþingmaðurinn Gaylord Nelson og orðaði hana fyrst við Kennedy forseta árið 1962. Þótt Kennedy væri áhugasamur um málið náði það ekki athygli þingsins í heild. Gaylord hélt samt áfram að berjast fyrir umhverfismálum eftir hefðbundnum leiðum, uns hann gerði sér grein fyrir að sá hópur sem hann ætti ef til vill að beina orðum sínum til væru háskólastúdentar og mótmælendur Víetnam stríðsins. Í september 1969, tilkynnti hann að næsta vor yrði stefnt á að halda Dag Jarðar.
|
|
Þriðjudagur, 09. Mars 2010 16:26 |
|
KLUKKUSTUND JARÐAR er hreyfing sem hófst í Sydney í Ástralíu árið 2007, þegar 2,2 milljónir heimila og fyrirtækja slökktu ljósin í eina klukkustund til að sýna að þau vildu afgerandi athafnir í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Einungis ári síðar var KLUKKUSTUND JARÐAR orðin að umhverfishreyfingu um allan heim, sem meira en 50 milljónir manna í 35 löndum tók þátt í. Þekkt kennileiti eins og hafnarbrúin í Sydney, CN turninn í Toronto, Golden Gate brúin í San Francisco og Colosseum í Róm voru um umlukt myrkri, sem vonartákn í baráttu sem verður mikilvægari með hverri klukkustund sem líður.
Í mars árið 2009 tóku milljónir manna um allan heim þátt í þriðju KLUKKUSTUND JARÐAR. Yfir 4000 borgir í 88 löndum slökktu formlega á ljósum sínum til að sýna stuðning við jörðina og gerðu KLUKKUSTUND JARÐAR 2009 þar með að stærsta átaksverkefni í baráttunni gegn loftlagsbreytingum.
KLUKKUSTUND JARÐAR 2010 verður laugardaginn 27. mars kl 20:30 að staðartíma og er alheimsákall til allra einstaklinga, fyrirtækja og samfélaga um að sína vilja sinn í verki. Þetta er ákall um að taka bæði ábyrgð og þátt í því að vísa veginn inn í sjálfbærari framtíð. Byggingar og kennileiti frá Evrópu til Asíu og Ameríku munu standa í myrkri þessa klukkustund. Fólk um allan heim mun slökkva ljósin sín til að sameinast í þessu átaki og hugsa um það sem við eigum öll sameiginlegt – þ.e. JÖRÐINA.
Það lítur út fyrir að þátttakan í KLUKKUSTUND JARÐAR verði mikil þetta árið. Þátttakan takmarkast einungis af vilja alþjóðasamfélagsins til að hafa eitthvað að segja um framtíð jarðarinnar. Áskorun KLUKKUSTUNDAR JARÐAR felst í því að endurmeta hvernig við lifum lífi okkar næstu klukkustundina, næsta dag og daginn þar á eftir.
Það er alltaf dimmast rétt fyrir dögun. Gerum þetta að dögun nýrrar GRÆNNAR ALDAR.
Skrifaðu í athugasemdardálkinn hér fyrir neðan og segðu okkur hvað þú ætlar að gera á KLUKKUSTUND JARÐAR þann 27. mars næstkomandi.
GGB
|
|
Grænn lífsstíll og heimilið |
|
Mánudagur, 18. Janúar 2010 01:21 |
|
Guðrún var í morgun (sunnudaginn 24/1) í þættinum hjá Sirrý á RÚV. Megininntakið í spjalli þeirra var eftirfarandi:
Gamalt máltæki segir að heimilið sér þar sem við hengjum hatt okkar – þótt í dag séu flestir hættir að ganga með hatt. Mörg göngum við hins vegar með húfur og væntanlega er því heimilið þar sem við hengjum þær eða hendum frá okkur.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
|