Krleikskorn dagsins

Sérhver endir er upphaf að einhverju nýju.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Bókin er komin út
Konur geta breytt heiminumÁ Degi Jarðar þann 22. apríl kemur út hjá Sölku Forlagi bókin KONUR GETA BREYTT HEIMINUM MEÐ NÝJUM LÍFSSTÍL eftir Guðrúnu G. Bergmann. Í þessari aðgengilegu og fallegu bók fjallar Guðrún um þau gífurlegu áhrif sem konur geta haft á umhverfið og samfélagið, með því að beina innkaupum sínum og lífsmáta inn á grænni brautir. Hún hvetur konur til að sýna samstöðu og efla góð gildi því þeim fær fátt grandað!

Guðrún er frumkvöðull í umhverfisvænni ferðaþjónustu á Íslandi en auk þess að hafa skrifað hinar ýmsu greinar um umhverfismál liggja eftir hana fjölmargar bækur um sjálfsrækt og heilsutengt efni. Hún mun gefa 10% af höfundarlaunum sínum til Umhverfissjóðs Snæfellsness.

Nú þegar er unnið að því að koma bókinni á framfæri í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum og verður spennandi að fylgjast með framgangi þess máls.

Úr fréttatilkynningu frá Sölku Forlagi.

 
tilvitnun6.png