skraut13.jpg
Kærleikskorn dagsins

Ég hef lært að lifa í augnablikinu.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Verðmætin sem í kringum okkur eru
Sunnudagur, 23. Maí 2010 09:16

Höf.: Guðrún G. Bergmann
Ég geng um Grafarholtið alla morgna vikunnar og nýt þess að virða fyrir mér vorið og sjá hvernig allt líf er að kvikna. Ilmurinn af öspunum sem eru að laufgast er höfugur og birkið ber alltaf með sér fyrirheit um dásamlega sumardaga og -nætur. Lerkið hefur komið mér á óvart, því það er svo fallegt þegar það fer allt í einu að laufgast og mér flaug í hug einn daginn hvort ekki verði lerkisveppir í kringum þessi flottu tré með haustinu. Vel þess virði að kanna það.


Fuglalífið hér bætir mér aðeins upp það að vera ekki lengur að fylgjast með því á Hellnum. Það var gaman að sjá fyrstu lóurnar hér í móunum og nú að fylgjast með tilhugalífi þeirra og sá hvernig karlfuglinn sperrir sig allan á meðan kvenfuglinn þykist vart taka eftir því og víkur sér aðeins undan. Nánast eins og tilhugalífsdans mannfólksins. Hér í næsta nágrenni við fjölbýlishús, akvegi og gangbrautir rennur auðvitað Korpa og hún dregur til sín fjölda fugla. Eitt gæsapar virðist ætla að gera sér hreiður í næsta nágrenni við gangbraut því þau eru þar sífellt á vappi.
Þá koma auðvitað ógnirnar, sem birtast í köttum hverfisins. Daglega rekst ég á ketti sem hafa sett sig í veiðistellingar, eigi langt frá fuglum sem eru svo uppteknir af tilhugalífinu að þeir taka vart eftir þeim. Fyndnast þótti mér samt að sjá frekar lítinn kött liggja í leyni eins og hann ætlaði að ráðast á gæsapar. Kannski bráð sem er aðeins og stór fyrir hann.
Best af öllu er þó að gera sér grein fyrir að í gróðrinum og dýralífinu er að finna verðmæti sem við þurfum ekki að greiða fyrir. Við megum njóta þeirrar ánægju að fylgjast með þeim án þess að það kosti okkur nokkuð. Eina sem við þurfum að gera er að taka eftir þeim.
Lífið er til að lifa því - ekki sóa því - og með því að njóta alls sem í kringum okkur er fáum við meira út úr því. 

 

Bæta við athugasemd

Öryggiskóði
Sjá nýjan öryggiskóða

tilvitnun2.png