|
Hér er listi yfir ýmislegt sem er með góðu móti hægt að gera til að spara orku, aura og vera jafnframt góður við jörðina okkar. Það er eflaust margt fleira sem má vera á þessum lista svo endilega verið þið með í gera okkur grænni og sendið okkur fleiri atriði :o)
Kveðja Snædís.
Þrif:
- Nota trefjaklúta.
- Nota náttúruleg hreinsiefni úr eldhúsinu, t.d. matarsóda, sítrónusafa og edik. Hér eru leiðbeiningar http://housekeeping.about.com/od/environment/a/vinbaklemons.htm
- Nota umhverfisvæn hreinsiefni og fara sparlega með þau.- Ecover, Sonata o.fl. leita eftir merkjum um að hreinsiefnin sem keypt eru séu umhverfisvænar vörur
- Gömul handklæði og bómullarbolir eru bestu tuskurnar.
Orkusparnaður í eldhúsi:
- Nota hæfilega stóra hellu fyrir pottana og hafa lok á þeim meðan verið er að elda.
- Vel má sjóða kartöflur og fisk eða kjötbollur í sama potti.
- Hrísgrjón má bullsjóða í 5 mín og slökkva svo undir og þau verða fín eftir 20 mín. Tekur klst fyrir hýðisgrjón.
- Skola i uppþvottavélina (setja tappa í vaskinn) og þvo aðeins fullar vélar.
- Í stað plastpoka og filmu má leggja disk yfir matarafganga eða nota tóm ísbox. Þau eru líka góð nestisbox.
- Skipuleggja máltíðir svo hægt sé að taka úr frysti og þýða í ískáp í stað þess að nota orku í að þýða frosið.
Neysla:
- Kaupa matvæli sem eru framleidd nálægt þér. Þú veist hvernig þér líður eftir margra tíma ferðalag. Grænmetinu líður eins.
- Kaupa umhverfisvænt og lífrænt ræktað alltaf þegar kostur er.
- Spyrja sjálfan sig "Get ég verið án þess?" "Á ég eitthvað heima, sem gerir sama gagn og ég get notað í staðinn?"
- Kauptu leikhúsmiða, gjafabréf á þjónustu eða íslenskt handverk til gjafa í stað innfluttra hluta.
Þvottur:
- Nota umhverfisvænt þvottaefni og fara sparlega með það. 1 msk dugar alveg fyrir hverja vél.
- Ganga einum degi lengur í fötunum ef hægt er. Færri þvottar spara margar vélar á ársvísu.
- Þvo betri föt og viðkvæmari í höndunum, a.m.k. stundum. Það er mikið álag á flíkur að hnoðast í þvottavélinni.
- Hengja til þerris í stað þess að nota þurrkarann. Sparar orku, slit á þurrkara og fatnaði.
- Skipuleggja þvotta þannig að það sé 1 vél á dag ef það er lítið pláss á snúrunni.
Baðherbergi:
- Nota stundum heitan þvottapoka til að þvo sér í stað þess að fara í sturtu.
- Fara saman í sturtu og baða börnin saman, það er líka skemmtilegra.
- Búa til maska, næringu, skrúbb, skol og ýmsar fleiri snyrtivörur úr því sem er til í eldhúsinu. Það er ódýrt, ferskt og inniheldur engin dularfull aukaefni. Sjá uppskriftir til dæmis á http://enisart.tripod.com/beauty.htm og http://www.makeyourcosmetics.com
- Kaupa lífræn sjampó og krem og fara sparlega með þau.
- Klára það sem er til áður en nýtt er keypt. Klippa tannkremstúpuna til að nota allt úr henni og nota pensil í varalitinn þar til hann er búinn. Ef liturinn hentar ekki má hita varalitinn með kveikjara, hella honum í ísbox og blanda saman við annan lit og búa þannig til nýjan.
Fatnaður/vefnaðarvara:
- Hugsaðu áður en þú hendir.
- Gömul handklæði eru fín í tuskur, þvottastykki, smekki og fleira.
- Gallabuxur geta orðið svunta með vösum, pokar, pils og margt fleira.
- Sumarkjóla á stelpur má sauma úr fyrrum blússum eða sængurfatnaði.
- Netið er botnlaus uppspretta af góðum hugmyndum, til dæmis á slóðinni http://www.favecrafts.com/Green-Crafting
Garðurinn:
- Taktu frá horn til jarðvegsgerðar og settu grænmeti og matarleifar í. Það sparar líka sorphirðugjald.
- Kartöflugarða er hægt að fá hjá bæjarfélaginu, ef þú býrð ekki svo vel að hafa blett heimavið til að rækta á.
- Það getur vel verið prýði af því að setja kryddjurtir og annað sem má borða í skrautblómabeð eða í ker.
- Ekki nota unnið timbur kringum grænmetið því eiturefni úr fúavörninni smitast útí moldina með tímanum.
Umhverfi:
- Notaðu búðarferðina til að skila í endurvinnslugámana sem eru staðsettir við flesta verslunarmiðstöðvar.
- Leggðu þitt af mörkum til að þeir staðir sem þú heimsækir líti aðeins betur út þegar þú ferð en þegar þú komst.
- Pottaplöntur hreinsa loftið af óæskilegum lofttegundum, bæta rakastig og eru til prýði ef þær eru vel hirtar.
Börn:
- Klæða þau í náttúruleg efni.
- Nota taubleyjur.
- Nota volgt vatn í hitabrúsa og þvottastykki á skiptiborðið í stað blautklúta.
- Nota Weleda og aðrar mildar lífrænar snyrtivörur og MJÖG sjaldan sápu.
- Ef þú ætlar að mála barnarúm eða leikföng fyrir smábörn, biddu þá um málningu sem má borða. Börn í tanntöku naga ALLT.
- Kynna sér náttúrlegar aðferðir til að hjálpa þeim í minniháttar veikindum.
Hér er eitt ráð við eyrnabólgu: Saxa 1/2 lauk í vasaklút, kreista uppúr heitu vatni og leggja við eyrað, tylla með lambúshettu og skipta á 2 tíma fresti þar til verkur fer. Margar eyrnabólgur stafa af vírus og þá eru sýklalyf gagnslaus. Fleiri ráð til sjálshjálpar er að finna á netinu t.d. http://www.healthy.net
Ýmislegt:
- Taktu raftæki sem eru sjaldan notuð úr sambandi, ekki gleyma hleðslutæljum.
- Slökktu almennilega á "stand by" tækjum eins og sjónvarpi, tölvum, kaffivélum í lok dags.
- Slökktu ljós í mannlausum herbergjum.
- Náðu þér í aukahreyfingu með því að ganga eða hjóla í vinnuna, taka stigann í staðinn fyrir lyftuna, skreppa í sund eða bera út morgunblöðin.
- Sameinaðu hreyfingu og samverustundir fjölskyldunnar og börnin læra að hreyfing er holl og skemmtileg.
|