
“Ég opna mig fyrir allsnægtum alheimsins.”
| Kynning á Garðatorgi 20 júní. |
| Föstudagur, 26. Júní 2009 11:38 |
|
Guðrún og Kristín frá Sölku klæddust sérstökum áprentuðum bolum á kynningunni.
Bókaútgáfan Salka var með kynningu á bókinni KONUR GETA BREYTT HEIMINUM MEÐ NÝJUM LÍFFSTÍL laugardaginn 20. júní í tengslum við Kvennahlaup í Garðabæ. Ótal konur komu og kíktu við hjá okkur og sýndu grænum lífsstíl áhuga. Salka hefur látið útbúa skemmtilegt bókarmerki sem er í laginu eins og fótspor og Guðrún dreifði því til hlaupakvenna, sem stungu því glaðar í vasann á hlaupagallanum, á meðan Kristín frá Sölku stóð við kynningarborðið. Frábær stemming var á Garðatorgi og gaman að hitta þær framtakssömu konur sem þar voru.
|


