skraut14.jpg
Krleikskorn dagsins

Í dag fylli ég huga minn þakklæti og gleði.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Guðrún í viðtali hjá Kastljósi á RÚV
Mánudagur, 01. Júní 2009 17:48

26.05.09 – Guðrún var í viðtali í Kastljósi í gær, þar sem Elsa María spurði hana út í efni bókarinnar KONUR GETA BREYTT HEIMINUM með nýjum lífsstíl. Guðrún lagði áherslu á það hversu öflugar konur geta verið þegar þær beita því valdi sem þær búa yfir og felst meðal annars í því að þær stýra um 80-85% af smásöluinnkaupum til heimilisins – og er þá átt við allt sem keypt er inn til þess. Jafnframt benti Guðrún á hversu mikilvægt það er að hugsa um að spara orku og gæði landsins, eins og vatnsnotkun, en með minni orkunotkun er t.d. minni þörf á fleiri raforkuverum. Karlar hafa með sinni stjórn komið okkur í þá klípu sem við erum í efnahagslega – nú er það kvenna að taka ábyrgð, beita sér hvar í samfélaginu sem þær eru og breyta í sameiningu heiminum sem við búum í.

Sparnaður og umhverfisstjórnun snýr ekki bara að heimilunum heldur einnig að fyrirtækjum og Guðrún benti á hvernig henni hafði tekist að spara um 200 þús í rafmagnskostnað á Hótel Hellnum með því að beita ákveðnum sparnaðarráðstöfunum. Reyndar kom það ekki fram í viðtalinu, en sveitarfélagið Snæfellsbær bauð í fyrsta sinn fyrirtækjum í dreifbýli upp á möguleika til flokkunar á úrgangi, þ.e. úrgangi sem fer til urðunar annars vegar og hins vegar til endurvinnslu. Sá úrgangur Hótels Hellna sem fór til urðunar árið 2007 var rúm 5 tonn, en árið 2008 þegar hægt var að flokka úrganginn almennt, minnkaði sá hluti hans sem fór til urðunar í rúm 1,4 tonn. Minna álag á landið, meira til endurvinnslu.

 

Bæta við athugasemd

Öryggiskóði
Sjá nýjan öryggiskóða

tilvitnun6.png