
“Innri leit er auðgandi og fyllir líf mitt gleði og kærleika.”
| Frábær ferð til Vestmannaeyja |
| Fimmtudagur, 07. Maí 2009 13:35 |
|
Ég er búin að sjá að annað slagið þarf maður að halda út á Reykjavíkurflugvöll til að hitta þá sem maður þekkir eða kynnast fólki sem vinir manns þekkja. Mánudaginn 4. maí var ég á leið til Eyja og hitti m.a. Eivöru Páls, sem var á leið til hinna eyjanna, þ.e. Færeyja. Gat spjallað aðeins við hana og sagt henni að mig langar að eiga málverk eftir hana. Svo hitti ég Ásbjörn hvalamann sem rekur núna Markaðsstofu Norðurlands og hann kynnti mig fyrir hjónunum sem reka Friðrik V. á Akureyri. Ég var rétt búin að segja þeim að mér væri boðið út að borða á veitingastaðinn þeirra síðar í mánuðinum, þegar ég heyrði nafn mitt kallað. Ég hafði sem sagt ekki heyrt þegar tilkynnt var um flugið því ég var svo upptekin að spjalla við vinina - en brást vel við kalli og barðist á móti rigningu og roki út í vél og flaug af stað til Eyja. Sá ekki neitt nema skýjaþoku þar til við vorum um það bil að lenda en þá voru það ógnvekjandi öldutoppar sem blöstu við rétt fyrir neðan vélina. Flugfreyjan sagði, þegar við vorum lent, að þetta yrði sennilega síðasta flug dagsins því veðrið væri svo vont. Hún reyndist hins vegar ekki sannspá því ég hafði vart verið á Heimaey í meira en klukkustund þegar sólin var farin að skína. Naut mín því í góðviðrinu meðan ég gekk frá hótelinu í verslun Pennans þar sem ég kynnti KONUR GETA BREYTT HEIMINUM frá 4-6 hjá Erlu verslunarstjóra og Kollu sem vinnur hjá henni. Eftir frábæran tíma hjá þeim var það matur á Café Maria og svo sótti Ágústa formaður Kvenfélagsins Líknar mig. Aðaltilgangur Eyjaheimsóknar var að mæta á fund hjá kvenfélaginu og kynna fyrir þeim hvað konur geta gert til að hafa áhrif á umhverfismál. Eyjarkonur voru hressar að vanda og góð mæting á fundinn, auk þess sem þær báru fram dýrindis veitingar svo hlaðborðið svignaði. Næsta morgun flaug ég aftur upp á fastalandið eftir ánægjulega dvöl í Eyjum. / Guðrún |


