|
Guðrún hefur alltaf áhuga á að koma og kynna hugmyndir sínar um það hvernig KONUR GETA BREYTT HEIMINUM, svo ef þig vantar fyrirlesara fyrir hópinn þinn hafðu þá endilega samband við hana í gegnum netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Umræðuefnið getur verið eitthvað eftirfarandi:
KONUR GETA BREYTT HEIMINUM Fjallað um það hversu áhrifaríkar konur eru og hvernig þær geta breytt heiminum, ef þær beita valdi sínu af kostgæfni.
GRÆNN LÍFSSTÍLL FYRIR HEIMILIÐ Fjallað um helstu þætti heimilisreksturs, hvernig gera má hann grænni, hvað ber að hafa í huga þegar hugsað er um sparnað og betri nýtingu á ráðstöfunartekjum heimilisins, ræktun grænmetis og margt fleira skemmtilegt.
GRÆNN LÍFSSTÍLL FYRIR FYRIRTÆKIÐ Fjallað um helstu þætti sem hafa ber í huga ef taka á upp GRÆNAN LÍFSSTÍL og umhverfisstefnu á vinnustaðnum. Hvernig hægt er að hefja ferlið og hvaða skref má svo taka í framhaldi af því. Hentar vel fyrir skrifstofur og verslanir, en gæti einnig tengst öðrum fyrirtækjum svo sem hótelum og veitingastöðum, en Guðrún á og rekur Hótel Hellnar á Snæfellsnesi sem er fyrsta umhverfisvottaða hótelið á Íslandi.
GRÆNN LÍFSSTÍLL FYRIR FJÖLSKYLDUNA Fjallað um það hvernig fjölskyldan getur tamið sér GRÆNNI LÍFSSTÍL, bæði dagsdaglega og eins í frístundum.
GRÆNN LÍFSSTÍLL OG HEILSAN Eitthvað það mikilvægasta sem ég fjalla um, því öll viljum við njóta þess að lifa lífinu hress og heilbrigð.
|