skraut12.jpg
Krleikskorn dagsins

Hamingjan fylgir mér hvert fótmál í dag.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Auðveld leið

Einhvern veginn hefur sú mýta fest sig í sessi að það sér erfitt að tileinka sér GRÆNAN LÍFSSTÍL, það taki of mikinn tíma, kosti of mikla vinnu og sé á engan hátt spennandi. Með bókinni KONUR GETA BREYTT HEIMINUM viljum við rjúfa þessa mýtu, því það getur verið bæði spennandi, skemmtilegt og sexý að velja sér GRÆNAN LÍFSSTÍL – auk þess sem það hjálpar þér að ná betri stjórn á eigin lífi, skapa meira aðhald í fjármálum þínum og eflir og styrkir þína eigin heilsu.

Fyrir þær sem eru enn hikandi, er hér auðveld leið til að fylgja.

  1. Farðu yfir almenna stöðulistann til að sjá hvar þú ert nú þegar að fylgja GRÆNUM LÍFSSTÍL og hvar þú getur bætt þig.
  2. Veldu hvar þú ætlar næst að bæta þig og veldu hvað þú ætlar að gera.
  3. Fylgstu með eyðslunni á bílnum þínum – þ.e. hversu miklu bensíni (olíu) bíllinn eyðir á 100 km í einn mánuð, svo þú eigir auðveldar með að fylgjast með sparnaði.
  4. Hafðu innkaupatösku, plastpoka sem þú endurnotar eða innkaupapoka úr pappír í bílnum þínum til að nota þegar þú verslar í matinn.
  5. Farðu yfir allar hreinlætisvörur sem þú átt – notaðu þær upp – en veldu umhverfismerktar vörur næst þegar þú endurnýjar birgðirnar.


Næsti mánuður:

  1. Skoðaðu upplýsingar um vistakstur inni á www.kolvidur.is og temdu þér að aka eftir þeim leiðbeiningum sem þar eru.
  2. Fylgstu aftur með eyðslunni á bílnum þínum – í lok mánaðar ættir þú að sjá hvaða áhrif vistakstur hefur á eyðslu bílsins.
  3. Veldu að ganga í vinnuna einn dag í viku – eða notað almenningssamgöngur.
  4. Pantaðu þér lífrænt ræktað grænmeti í áskrift – ekki bara gott á bragðið, heldur rosalega gott fyri r heilsuna.


Við höldum svo áfram að bæta við ráðleggingum hér, eftir því sem tíminn líður.
Sendu okkur endilega póst ef það er eitthvað sem þú ert í vafa um eða vilt að við bætum eða breytum á vefsíðunni.

 
tilvitnun3.png