Hér er listi yfir ýmislegt sem er með góðu móti hægt að gera til að spara orku, aura og vera jafnframt góður við jörðina okkar. Það er eflaust margt fleira sem má vera á þessum lista svo endilega verið þið með í gera okkur grænni og sendið okkur fleiri atriði :o)
Nú er hægt að skrifa sig á lista fyrir grænmetisgarð hjá Reykjavíkurborg og eflaust þá líka hjá öðrum sveitafélögum, svo nú er lag að skrá sig. Það eru 100 fm garðar í Skammadal og 18 fm blettir hér og þar um borgina. Blómaval er með ókeypis námskeið næstu fimmtudaga um ýmislegt sem varðar ræktun og ég hvet fólk til að láta verða af því að rækta sitt eigið grænmeti. Ég hef haft áhuga í mörg ár og finnst mjög gaman að prófa mig áfram. Það verður enginn meistari strax, best að byrja á einhverju auðveldu og gera svo tilraunir með viðkvæmari tegundir.
Líka er tilvalið að stinga 5 salatfræjum í pott í eldhúsgluggann og svo jafnmörgum í annan e.t.v viku seinna og eiga þannig alltaf fersk salatblöð.Einnig er til ótrúlegt úrval af spennandi kryddjurtum sem er tilvalið að rækta í eldhúsglugganum og hafa þær ferskar við hendina. Fyrir þá sem eru ekki alltaf heima til að vökva þá er ráð að setja blómapottinn á "pall" í bala sem er með vatni í, setja svo tusku undir pottinn og ofaní vatnið þá helst moldin rök. Mæli kannski frekar með leirpotti í svona vökvunarkerfi.