Öllu hrært saman og sett í mjólkurfernur, mackintosh dós eða í steikarpottinn með bökunarpappír undir og yfir. Bakað við 100 gráður í 9 stundir.
Áhrif hriensiefna á bakteríur og ónæmiskerfið.
Þriðjudagur, 16. Mars 2010 19:45
Ég fékk nýlega lánaða á bókasafninu bókina Whole green catalog - 1000 best things for you and the earth. Ég hef ekki náð að lesa hana alla en endursegi hér kafla sem höfðar sérstaklega til mín. Ég er dagmamma og hjá mér eru 5 lítil börn sem eru oft með hor og setja í munninn leikföng sem koma beint úr munninum á næsta barni. Okkur dagforeldrum er uppálagt að nota handspritt en ég hef það eftir Herdísi Storgaard að góður handþvottur skili svipuðum árangri og notkun á handspritti.
Hjálplegt eða skaðlegt
Bakteríudrepandi sápur og hreinsiefni eru að verða æ vinsælli fylgihlutur við vaska bæði í heimahúsum og á almenningssnyrtingum og fást orðið í öllum matvöru- og rekstarvöruverslunum. Ekki er það vegna þess að það séu fleiri sýklar eða bakteríur en voru fyrir 20 árum, heldur vegna þess að við erum miklu smeykari við þær. Óvíst er þó að bakteríudrepandi sápur og sótthreinsiefni séu besta leiðin til að vernda heilsuna.