Krleikskorn dagsins

Framkoma mín er full af kærleika og gleði.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Salka
Hótel Hellnar
Icelandic H2O Glacial

Betra líf


GRÆNN LÍFSSTÍLL
Frontpage Slideshow (version 2.0.0) - Copyright © 2006-2008 by JoomlaWorks
Græn saga :o)
Mánudagur, 24. Maí 2010 21:16

Mig langaði að deila með ykkur minni reynslu af að verða grænni og sælli manneskja í von um að einhver hafi gaman af og einhver jafnvel fái hugmynd um hvað er hægt að gera.

Sorpið; Ég hef verið frekar dugleg að taka frá fernur, dagblöð, pappaumbúðir, eggjabakka og þess háttar. Það er helst súrmjólkurfernurnar sem fara í ruslið því það er leiðinlegra að þrífa þær.Það kom mér á óvart hvað þetta er stór hluti af sorpinu. Tunnurnar voru oft yfirfullar mörgum dögum fyrir tæmingu en það gerist ekki núna. Það stundum gleymist að nota búðarferðina til að skila í gáminn, en við erum að vinna í því svo haugurinn verði ekki svona stór.

 
Verðmætin sem í kringum okkur eru
Sunnudagur, 23. Maí 2010 09:16

Höf.: Guðrún G. Bergmann
Ég geng um Grafarholtið alla morgna vikunnar og nýt þess að virða fyrir mér vorið og sjá hvernig allt líf er að kvikna. Ilmurinn af öspunum sem eru að laufgast er höfugur og birkið ber alltaf með sér fyrirheit um dásamlega sumardaga og -nætur. Lerkið hefur komið mér á óvart, því það er svo fallegt þegar það fer allt í einu að laufgast og mér flaug í hug einn daginn hvort ekki verði lerkisveppir í kringum þessi flottu tré með haustinu. Vel þess virði að kanna það.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

tilvitnun2.png