Kvenréttindafélag Íslands bauð Guðrúnu að halda fyrirlestur á hádegisverðarfundi þar sem fjallað var um áhrif umhverfisbreytinga á konur og eins hvert framlag kvenna í umhverfismálum getur verið. Guðrún fjallaði um málið út frá bók sinni KONUR GETA BREYTT HEIMINUM og benti á að í raun væri konur í lykilhlutverki þegar kæmi að breyttum áherslum í umhverfismálum . Þær byggju yfir svo miklu valdi, sem fælist m.a. í því að þær stjórna um 80% af innkaupum almennt. Góður rómur var gerður að erindi Guðrúnar, en á fundinum töluðu einnig Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona og Margrét Sverrisdóttir formaður Kvenréttindafélags Íslands. Meðal gesta fundarins var umhverfisráðherra Kolbrún Halldórsdóttir, sem hvatti í lok fundar konur til að vinna saman í breiðfylkingu að umhverfismálum.