|
Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 18:00 |
Í framhaldi af útgáfuhófi í Sölku Forlagi í dag, hélt Guðrún G. Bergmann til Bessastaða, þar sem hún færði forseta Íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni eintak af bókinni KONUR GETA BREYTT HEIMINUM. Forsetinn hefur fylgst með framþróun verkefnisins frá því það var á byrjunarstigi og hrósaði sérstaklega smekklegri hönnun Blævar Guðmundsdóttur á bókinni. Jafnframt var hann afar hrifinn af framtaki Sölku að láta pakka bókinni í niðurbrjótanlega filmu úr maíssterkju. Spurði hann meðal annars hvort ekki væri öruggt að starfsfólk bókaverslana myndi láta viðskiptavini vita um þessa sérstöðu pakkningarinnar. Jafnframt lagði hann til að framvegis yrði filman merkt sérstaklega sem niðurbrjótanleg í náttúrunni, en sem stendur er einungis grænt fótspor á henni.
Bókin er prentuð hjá GuðjóniÓ sem er umhverfisvottuð prentsmiðja.
Mynd: Forseti Íslands með bókina K0NUR GETA BREYTT HEIMINUM, ásamt höfundinum Guðrúnu G. Bergmann.
|
|
Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 16:00 |
KONUR GETA BREYTT HEIMINUM með nýjum lífsstíl kom út í dag og fékk strax frábærar viðtökur. Símhringingum til Sölku forlags hefur ekki linnt í dag, m.a. eftir viðtal höfundar við Guðrúnu Gunnars á RÚV í morgun, og þær bókabúðir sem ekki náðist að dreifa til í gær biðu spenntar eftir að fá sínar bækur. Með útgáfu bókarinnar er brotið blað í sögu bókaútgáfu því í fyrsta sinn á Íslandi, og sennilega í heiminum, er bók pökkuð í filmu sem unnin er úr maíssterkju (ekki úr erfðabreyttum maís) og brotnar filman niður í náttúrunni. Salka forlag hefur tekið ákvörðun um að framvegis verði bækur útgáfunnar annað hvort ekki plastpakkaðar eða þeim pakkað í filmu úr maíssterkju. Plastprent er hluti af þessu sögulega vistvæna framfaraspori, því þeir framleiddu filmuna. Umhverfisráðherra Kolbrún Halldórsdóttir mætti í útgáfuhóf í húsakynnum Sölku í Skipholti 50c í dag og sagði meðal annars í ávarpi sínu að bókin kæmi einmitt á réttum tíma og hún hefði fulla trú á því að konur sem væru að eflast mjög, m.a. í stjórnmálum myndu líka verða öflugar í umhverfismálum.
Mynd: Hildur Hermóðsdóttir eigandi Sölku Forlags, Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Guðrún Bergmann, höfundur KONUR GETA BREYTT HEIMINUM.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
|