Náttúran.is
Natturan.is
Krleikskorn dagsins

Ég opna mig fyrir allsnægtum alheimsins.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Mýtur sem tengjast grænum lífsstíl
„ENDURVINNSLA Á ÚRGANGI EYÐIR MEIRI ORKU EN HÚN SPARAR“
Hið sanna er: Yfirleitt kemur þessi mýta í formi þess að fólk segir: „Ef þú sendir bíla út um allt til að sækja úrgang sem fara á til endurvinnslu, eyðir þú meiri orku í það en þú sparar við endurvinnsluna.“ Þetta getur hljómað nokkuð sannfærandi, en er rangt. Endurvinnsla á áldósum leiðir til um 95% minni orkunotkunar og minnkunar á gróðurhúsalofttegundum, en þarf til að framleiða nýtt ál (þekkjum það hér á Íslandi frá „orkufrekum iðnaði“). Almennt má gera ráð fyrir að það þurfi tíu sinnum meiri orku til að framleiða nýja vöru úr hráefni, en það tekur að flytja notaða hluti til endurvinnslu og koma þeim í umferð aftur.
Heimildir: Rannsókn frá árinu 2004 – birt í International Journal of Life Cycle Assessment.

„ ÞAR SEM KÍNA OG INDLAND DÆLA ÚT SVO MIKILLI CO2 MENGUN – ER ENGIN ÁSTÆÐA FYRIR MIG AÐ DRAGA ÚR MINNI“
Hið sanna er: Koltvísýringsmengun í þessum löndum hefur aukist til muna hin síðari ár, en samt mengar hver einstaklingur þar minna en t.d. einstaklingar í Bandaríkjunum. Hins vegar verður það að kallast barnalegt að ætla að nota sér það sem afsökun fyrir eigin andvaraleysi að segja að „fyrst einhver annar mengar svona mikið, má ég það líka.“ Mest af þeirri tölfræði sem aðgengileg er tengist Bandaríkjunum, Kína og Indlandi – en talið er að meðal Bandaríkjamaður mengi 3.8 sinnum meira en meðal Kínverji og 10.7 sinnum meira en meðal Indverji. Koltvísýringsmengun má minnka um milljónir tonna árlega með því að kaupa t.d. sparneytnari bíla, temja sér vistakstur og nota oftar almenningssamgöngur.
Heimildir: Kenneth Broad, Ph.D. Prófessor við Miami háskólann og National Geographic Emerging Explorer.

„BETRA ER AÐ HAFA HITANN ALLTAF Á SÖMU STILLINGU EN AÐ HÆKKA HANN OG LÆKKA EFTIR ÞÖRFUM“
Bandaríska orkumálastofnunin (The American Council for an Energy Efficient Economy - ACEEE) hefur komist að þeirri niðurstöðu að það sparist meiri orka (og peningar) við það að lækka kerfisbundið hitann í eigin híbýlum um 2 gráður, t.d. yfir nóttina eða þegar þú ert ekki heima – heldur en við það að hafa hitann alltaf stilltan á sama hitastig. Skoðaðu síðu Orkuseturs, www.orkusetur.is , til að fá sambærilegar upplýsingar fyrir íslenskar aðstæður.

„TVINNBÍL ER MINNA UMHVERFISVÆNN EN HUMMER H3, EF TEKIÐ ER TILLIT TIL ALLS FRÁ FRAMLEIÐSLU TIL ENDA LÍFTÍMA“
Hið sanna er: Árið 2007 var gefin út rannsóknarskýrsla, sem fékk mikla dreifingu, þar sem því var haldið fram að vistfræðilegt fótspor Toyota Prius væri stærra en fótspor Hummer H3. CNW Marketing Research, sem stóð að rannsókninni, hélt því fram að orkan sem væri notuð við framleiðslu og endurvinnslu á Prius – sem þeir gerðu jafnframt ráð fyrir að ætti skamman líftíma – væri langtum meiri en minni bensíneyðsla hans. Þessi rannsókn stangaðist stórlega á við fyrri rannsóknir frá stofnunum eins og U.S. Department of Energy og Massachusetts Institute of Technology, sem mældu alla þætti í líftíma Priusins mun nákvæmar. Ein helstu mistök sem CNW rannsóknin gerði var að vanmeta þá orku sem notuð er í rekstri bílsins, sem í raun stendur fyrir 80-90% af líftímaorku hans – en CNW skilgreindi hana einungis sem 10% hluta hennar. Þótt framleiðsluferli á Prius feli í sér orkufrekar námuvinnslu á nikkel sem notað er í rafhlöðuna, þá er orkurekstrarkostnaður (bensín) bílsins svo hagstaður að hann skýtur Hummer H3 langt fyrir aftan sig hvað það varðar.
 

Bæta við athugasemd

Öryggiskóði
Sjá nýjan öryggiskóða

tilvitnun7.png