Náttúran.is
Natturan.is
skraut12.jpg
Krleikskorn dagsins

Ég leita að því sem er líkt með mér og öðrum, því við erum öll eitt.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Þessir pistlar eru birtir á blogg-síðu Guðrúnar Bergmann á mbl.is
Joð gegn geislavirkni

Margir á vesturströnd Bandaríkjanna hafa nú áhyggjur af hugsanlegri hættu á geislavirku ryki sem kann að berast frá Japan. Ákveðin hjarðhegðun hefur gripið um sig og birgðir af joðtöflum hafa selst upp í apótekum og heilsuvörubúðum. Þótt hollt og heilsusamlegt mataræði sé undirstaða góðrar heilsu, svo og góð blanda af bætiefnum, þá hafa læknar í Bandaríkjunum bent á að nægilegt magn af joði skipti miklu máli til að ónæmiskerfi líkamans sé öflugt.

Joðið binst við sérstaka móttaka um allan líkamann, meðal annars móttaka við skjaldkirtilinn. Þegar joð binst við þá framleiðum við skjaldkirtilshormón. Þeir einstaklingar sem skorta joð verða yfirleitt fyrir mestum heilsufarsskaða ef þeir verða fyrir mengun frá geislavirku joði. Hjá þeim, bindur hið geislavirka joð sig við hvaða móttaka fyrir joð

 í líkamanum, sem laus er. Eftir bindingu við slíkan móttaka eyðileggjast vefirnir í kringum hið geislavirka joð. Jafnframt eyðileggst DNA kjarni frumanna í kringum það svæði, en slík eyðilegging frumanna er ein af orsökum krabbameins.

 

Hvaða vefir bindast svo joði? Mesta samþjöppun joðs er í skjaldkirtlinum, en mest af joði finnst samt í fituvefjum. Einnig má finna mikið af joði í öðrum vefjum eins og í brjóstum, eggjastokkum, legi og blöðruhálskirtli.  Bindist geislavirkt joð við þessa vefi getur það leitt til alvarlegra heilsufarsvandamála. Mikilvægt er að hafa í huga að sérhver fruma líkamans þarfnast og nýtir joð. Því getur geislavirkt joð haft svo dramatísk áhrif á líkamann.

Geislavirkni safnsat upp í líkamanum yfir lengri tíma. Öll verðum við fyrir einhverri geislamengun úr umhverfi okkar, en mikilvægt er að verja líkamann fyrir slíku með því að tryggja að joðbirgðir hans séu nægar. Séu þær það getur líkaminn varið sig gegn geislavirkni eins og nú er í Japan og getur hugsanlega dreift sér víðar. Því er gott að tryggja að líkaminn hafi alltaf nægilegt magn af joði.

Í bók okkar Hallgríms Magnússonar læknis, Candida sveppasýking, fjöllum við um mikilvægi þess að leiðrétta vanvirkni í skjaldkirtli, meðal annars með joði, því þannig styrkist ónæmiskerfi líkamans.

Heimildir: http://drdavidbrownstein.blogspot.com/ og www.naturalnews.com

 
tilvitnun1.png