Náttúran.is
Natturan.is
skraut2.jpg
Krleikskorn dagsins

Innri leit er auðgandi og fyllir líf mitt gleði og kærleika.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Þessir pistlar eru birtir á blogg-síðu Guðrúnar Bergmann á mbl.is
Heilbrigð og góð melting

Fyrir mörgum árum síðan var ég í vinkvennahópi sem hittist reglulega. Ein úr hópnum, sem var nuddari og alltaf að meðhöndla fólk, var vön að spyrja þegar við hittumst: „Stelpur, hvernig eru hægðirnar hjá ykkur?" Við hinar hlógum og kölluðum hana „þarmologist" hópsins, en sennilega var hún að spyrja einnar mikilvægustu spurningar kvöldsins, því ef hægðirnar eru ekki í lagi, þá erum við að safna upp úrgangi í smáþörmum og ristli, sem síðan geta leitt til alvarlegra sjúkdóma.

Þeir sem þjást af Candida sveppasýkingu eða eru að fást við önnur meltingarvandamál ættu því að beina sjónum sínum að þessum líffærum og huga að heilsu þeirra. Það má gera með ýmsum hætti eins og til dæmis að taka inn 2 matskeiðar af extra virgin ólífuolíu á dag, en olían hjálpar til við að brjóta niður óhreinindi í ristlinum og losar candida sveppinn frá þarmaveggjunum ef hann er til staðar. Eins er gott að nota trefjaefni eins og psyllium husk, sem bólgnar upp eftir inntöku og dregur í sig óhreinindi úr ristilveggjunum.

Nýlega rakst ég á fæðubótarefni sem heitir Bio-Kult Candéa

og er nýtt á markaðnum hér. Það inniheldur vinveitta gerla (probiotics), auk hvítlauks og kjarnasafa úr greipaldinfræjum (GSE). Í því eru sjö gerlastofnar sem styrkja þarmaflóruna og hindra að Candida sveppurinn finni sér stað til að vaxa í þörmunum. Jafnframt lækka þessir gerlastofnar sýrustig þarmanna, en lægra sýrustig gerir það að verkum að Candida sveppurinn á erfiðara uppdráttar. Við þessa gerlastofna bætist svo hvítlaukurinn og kjarnasafinn úr greipaldinfræjum, en þau tvö efni eru náttúrulegar varnir gegn sveppum og styrkja þarmaflóruna.

Bio-Kult Candéa virðist virka fljótt og vel til að draga úr verstu sveppasýkiseinkennunum, eins og sjá má af frásögnum þeirra sem það hafa notað á: www.facebook.com/biokultcandea

 
tilvitnun1.png