Náttúran.is
Natturan.is
skraut10.jpg
Krleikskorn dagsins

Markmið mitt er að öðlast innri frið.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Þessir pistlar eru birtir á blogg-síðu Guðrúnar Bergmann á mbl.is
Rafbíll prufukeyrður
Ég held áfram í samstarfsverkefni við Íslenska-Nýorku og prófa nú hvernig það er að keyra rafbíl. Bíllinn er af tegundinni Miev frá Mitsubishi. Hann er lítill og snotur en ótrúlega rúmgóður og þægilegur í akstri.

Ég er búin að aka honum í nokkra daga og hann hefur staðið sig jafnvel í snjónum og hann gerir á þurrum götum. Bíllinn er hannaður fyrir Japansmarkað og því er stýrið á honum hægra megin. Það hefur ruglaði mig aðeins í rýminu, því stjórntækin við stýrið eru öfug við það sem er á mínum bíl. Því hef ég ítrekað sett þurrkurnar á þegar ég ætla að setja stefnuljósin á, en er nú yfirleitt fljót að leiðrétta það. Aðeins einu sinni hef ég hlammað mér inn í bílinn farþegamegin og uppgötvaði mistökin um leið og ég sá að fyrir framan mig var ekkert stýri.

Rafhleðslan á bílnum dugar yfirleitt í 60-80 km akstur, en í þessu kuldakasti sem nú er eyðir bíllinn meiru og því dugar hún bara í kringum 50 km. Bíllinn eyðir ekki miklu á jafnsléttu, en þegar hann fer upp brekkur eykst eyðslan. Hægt er að hlaða hann á bílastæðum Kringlunnar, við Iðnaðarráðuneytið og í Bankastrætinu ef á þarf að halda.

Hlakka til að halda áfram að prófa rafbílinn, en allar líkur eru á að rafbílar verði einn þeirra mengunarlausu valkosta sem meira verður um í framtíðinni.

 
tilvitnun4.png