|
Á næsta mánudag, þann 7. mars verður haldinn stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda í stóra sal Norræna hússins. Dagskrá fundarins og markmið samtakanna eru eftirfarandi eða eins og þau koma fram á Facebook síðu undirbúningshópsins
19:30 - Inngangsorð: Oddný Anna Björnsdóttir 19:40 - Kjör fundarstjóra og ritara 19:45 - Fundurinn formlega settur 19:50 - Erindi um mat og heilsu í iðnvæddum heimi: Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ 20:10 - Tillögur og umræður um fyrirkomulag samtakanna 20:40 - Hlé, skráning í framkvæmdanefnd og faghópa 21:10 - Kynning á framkvæmdanefnd og faghópum 21:20 - Almennar umræður 21:30 - Fundi slitið
Boðið verður upp á léttar lífrænt vottaðar veitingar/smakk. Á staðnum verður upplýsingamiðstöð
um lífrænan landbúnað og framleiðsluaðferðir.Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfis að leiðarljósi.
Markmið samtakanna er að efla miðlun upplýsinga um lífrænar afurðir og framleiðslu þeirra, hvetja til aukinnar neyslu á vottuðum lífrænum vörum, vekja athygli á kostum lífrænna aðferða og nauðsyn bættrar meðferðar búfjár, veita markaðinum aðhald um bættar merkingar og aukið framboð lífrænna afurða, og stuðla þannig að heilbrigðum lífsstíl og heilnæmu umhverfi.
Í undirbúningsnefnd stofnfundarins eru: Björg Stefánsdóttir, skrifstofustjóri NLFÍ Dominique Plédel Jónsson: Formaður Slow Food Eygló Björk Ólafsdóttir: Slow Food og Vallanes/Móðir Jörð Guðmundur R. Guðmundsson: Nefnd um Græna hagkerfið Guðrún Helga Guðbjörnsd.: Brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu hjá LBHÍ Guðrún Hallgrímsdóttir: Stjórnarmaður og formaður vottunarnefndar Túns Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur: Náttúran.is Gunnar Á Gunnarsson: Framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns Kristín Vala Ragnarsdóttir: Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ Ólafur Dýrmundsson: Landsráðunautur í lífrænum landbúnaði Oddný Anna Björnsdóttir: Stjfm Lifandi ehf og stofnandi SLN á FB Sirrý Svöludóttir: Lífrænn bloggari og markaðsstjóri Yggdrasils
Fundurinn er öllum opinn og allir velkomnir. Þarna gefst kærkomið tækifæri til að sameina krafta þeirra sem hafa áhuga á hollara og heilbrigðara fæði fyrir sig og kynslóðir framtíðarinnar. |