Náttúran.is
Natturan.is
skraut12.jpg
Krleikskorn dagsins

Ég leita að því sem er líkt með mér og öðrum, því við erum öll eitt.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Þessir pistlar eru birtir á blogg-síðu Guðrúnar Bergmann á mbl.is
GRÆNN APRÍL

Fyrir ekki svo löngu stofnuðu nokkrir einstaklingar með áhuga á umhverfismálum félagasamtökin GRÆNAN APRÍL. Markmið samtakanna er að hvetja ríkisstjórnina, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að sameinast um að tileinka umhverfinu aprílmánuð og nýta hann til að kynna vöru, þekkingu og þjónustu sem stuðlar að grænni og umhverfisvænni framtíð og sjálfbærara Íslandi.

Nú þegar hafa stærstu sveitarfélög landsins, þ.e. Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður og Akureyri tekið ákvörðun um þátttöku í verkefninu auk Faxaflóahafna og nokkurra fyrirtækja. Að auki munu Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Umhverfisráðuneytið vera GRÆNJAXLAR verkefnisins, en GRÆNJAXLAR eru þeir sem eru formlegir

 stuðningsaðilar við GRÆNAN APRÍL. Viðræður standa yfir við önnur ráðuneyti og fyrirtæki um þátttöku, en kynning á verkefninu hefur verið send til meira en tvö hundruð aðila.

Undirbúningur fyrir GRÆNAN APRÍL er rétt að fara af stað, en þegar hefur verið sett upp vefsíðan www.graennapril.is og Facebook síðan http://facebook.com/graennapril.is. Hægt er að vera þátttakandi í þessu verkefni á nokkra mismunandi vegu, svo allir eiga að geta verið með. Eftirfarandi þrjár leiðir eru meðal valkosta:

  • Gerast félagi í félagasamtökunum GRÆNUM APRÍL. Árgjaldið er 2.500 krónur.
  • 2. Gerast þátttakandi í GRÆNUM APRÍL gegn 5.000 króna gjaldi. Þátttakandi fær þá lógó samtakanna og getur sett það á vefsíðuna sína eða í auglýsingar í öðrum miðlum og getur jafnframt skráð viðburði sem hann vill setja upp á dagatal á síðunni. Viðburðir verða kynntir í gegnum vefinn www.graennapril.is og í fjölmiðlum.
  • Gerast GRÆNJAXL, en GRÆNJAXLAR kallast þeir sem eru bakhjarlar verkefnisins og styðja það með fjárframlagi.

Gert er ráð fyrir ýmsum viðburðum í aprílmánuði, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu og eins úti um landið. Jafnframt stendur GRÆNN APRÍL fyrir listaverkasamkeppni leikskólabarna, en þar er markmiðið  að listaverkin séu unnin úr endurnýtanlegu efni.

 
tilvitnun4.png