|
Það felst töluverð áskorun í því að forðast glúten, auk þess sem mörgum finnst það mikil fórn, því flest kolvetnarík fæða sem er í uppáhaldi hjá okkur inniheldur glúten. Þetta sérstaka prótín er í miklu mæli í hveiti, rúg, byggi og mörgum öðrum korntegundum... og finnur sér leið yfir í brauð, kex og pasta svo eitthvað sé nefnt. Glúten getur líka verið falið þar sem þú átt síst vona á því, t.d. í fæðutegundum eins og vanilludropum, sælgæti, kjötseiði eða jógúrt. Þeir sem þjást af glútenóþoli , hvort sem það er á háu eða lágu stigi, vita að ef þeir borða bara nokkra bita af matvöru sem inniheldur glúten getur það haft truflandi áhrif á meltingarveginn og valdið skaða á slímhúð þarmanna. Sérfræðingar áætla að um 43% bandaríkjamanna (má gera ráð fyrir svipuðum tölum á öðrum vesturlöndum) sé með einhvern vott af glútenóþoli og því getur
ein brauðsneið eða pastadiskur haft truflandi áhrif á meltingarkerfið. Ef þú heldur að þú sért með glútenóþol væri gott að skoða eftirfarandi:
- Leitaðu einkenna. Fæðuofnæmi getur birst nánast samstundis með skýrum einkennum, en einkenni þeirra sem eru með fæðuóþol eru oft ekki eins skýr. Merki um það eru (sí)þreytueinkenni, þyngdaraukning, bjúgur (einkum í andliti) og meltingarvandamál eins og loft í þörmum, brjóstsviði, niðurgangur eða hægðatregða.
- Íhugaðu mælingu. Glútenóþol er oft greint með blóðprufu, saursýni eða vefjasýni út þörmunum, þótt ekki sé alltaf auðvelt að greina það í fyrstu tilraun. Ef þú heldur að glútenóþol sé orsökin að heilsufarsvandamáli þínu, hafðu þá samband við lækni - eða ef þú vilt leita eigin leiða að bata, skoðaðu þá vefsíður sem fjalla um glútenóþol og ráð til bata.
- Prófaðu glútenlaust mataræði. Nú er hægt að fá töluvert úrval af glútenlausum mat, þar á meðal brauð og pasta. Prófaðu að hætta alveg að borða með glúteni í einn mánuð og fylgstu með því hvort þú léttist eða hvort heilsa þín almennt batni. Mundu að þú þarft líka að varast „falið" glúten í sterkju (modified food starch), ýmsum þykkingarefnum, karamellulit, MSG, bragðbættu kaffi og sojasósu. Kannski er þetta leiðin til betri heilsu.
Þrátt fyrir allt eiga fórnir alltaf rétt á sér, ef þær leiða til betri heilsu og þegar við komumst að raun um að hún batnar ef við hættum að borða ákveðnar fæðutegundir, þá er sjálfsagt að prófa það - EF við metum heilsuna það mikils að við setjum hana í fyrsta sæti.
Heimild: Bók Suzanne Somers - Sexy forever, how to fight fat after forty! |