Náttúran.is
Natturan.is
skraut2.jpg
Krleikskorn dagsins

Ég elska mig eins og ég er.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Þessir pistlar eru birtir á blogg-síðu Guðrúnar Bergmann á mbl.is
Útópíuframtíð á Haiti

Ýmsir arkitektar hafa komið með tillögur að uppbyggingu á Haiti, þeirra á meðal Vincent Callebaut (http://www.vincent.callebaut.org/cv.php). Hann kynnti fyrir skömmu nýstárlegum tillögur sínar, en hugmynd sína að umhverfisvænu útópíuþorpi sækir hann til kóralrifsins. Hann vill kalla þorpið KÓRALRIF og gerir ráð fyrir að hver bygging myndi geta hýst 1.000 haitískar fjölskyldur, en fyrirhugaðar byggingarnar eiga að standa á bryggjum sem liggja út í sjó og eiga að þola jarðskjálfta.

Þær yrðu samsettar úr fyrirframbyggðum einingum sem myndu falla inn í hið öldulaga form bygginganna. Sérhvert heimili myndi nýta orku í lágmarki og byggingarnar væru drifnar áfram á endurnýtanlegri

 orku svo kolefnislosun frá þeim væri algerlega jöfnuð út. Í tillögum Callebaut er gert ráð fyrir að hver fjölskylda fái landspyldu til að rækta sinn eigin mat, þannig að fólk geti líka unnið að eigin matvælaframleiðslu.

Heimild: http://www.huffingtonpost.com/2011/02/19/vincent-callebaut-coral-village_n_824061.html#s241156

 
tilvitnun4.png