|
Í Bandaríkjunum er rekin þjónusta sem heitir YouSendIt og er með yfir 15 milljón notendur, sem senda yfir 20 milljón skjöl mánaðarlega á milli 192 landa. Þjónustan felst í því að hægt er að hlaða skjölum inn á svæði hjá YouSendIt, þeir sjá síðan um að senda póst á viðtakandann með slóð sem hann fer inn á til að hlaða niður skjalinu. Þjónustan er notuð jafnt af fyrirtækjum og einyrkjum - þeirra á meðal eru grafískir hönnuðir, ljósmyndar, fyrirtækjaráðgjafar og fjölmiðlafólk. Yfir 62.000 notendur frá fyrirtækjum eins og Ritz Camera, Vmware, Salesforce, Reuters og Kelly Moore Paints treysta því að YouSendIt sjái um að koma gögnum þeirra til viðtakenda á réttum tíma.
Nokkrar helstu ástæður þess að nota ætti YouSendIt til að send stór göng milli staða eru:
- Orkueyðslan á bak við það að senda einn tölvupóst (í Bandaríkjunum) er jöfn bruna á 1 ½ kg af kolum og loftmengun frá honum. Með því að skipta stórum skjölum í nokkra tölvupósta sem viðhengi, eykst orkunotkunin og kolefnislosunin.
- Með því að senda skjöl minnkar pappírsnotkun og kemur í veg fyrir skógareyðingu.
- Fáar atvinnugreinar nota jafn mikið af vatni og pappírsframleiðsla. Minni pappírsnotkun er því vatnssparandi.
- Pappírsframleiðsla er í þriðja sæti þeirra atvinnugreina sem losa mest af gróðurhúsalofttegundum, næst á eftir efnaiðnaðinum og stálframleiðslunni.
- Geisladiskar og DVD diskar valda mikilli losun koltvísýrings út í andrúmsloftið. Við framleiðslu á hverjum CD eða DVD disk er losað 1 ½ kg af koltvísýringi út í andrúmloftið.
- CD og DVD diskar brotna ekki niður í náttúrunni. Gert er ráð fyrir að meira en milljarður CD og DVD diska endi á urðunarstöðum á næstu fimm árum.
- Í hvert skipti sem þú sendir eitthvað í pósti falla álögur á umhverfið. Með því að senda einn pakka um 350 km leið er gert ráð fyrir að 70 kg af koltvísýringi losni út í andrúmsloftið.
Með því að nota YouSendIt hafa fyrirtæki komið í veg fyrir losun á 409.324 tonnum af koltvísýringi á síðasta ári og sóun á rúmlega 10 milljón lítrum af vatni.
Um leið og fyrirtæki finna fyrir því að verð á hráefni til framleiðslu og orku hækkar finnur jörðin líka fyrir álaginu. Því eru þessi grænu spor hjá YouSendIt ekki bara mikilvæg sparnaðarleið fyrir viðskiptin, heldur einnig fyrir náttúruna.
Heimildir: http://www.go-green.ae/greenstory_view.php?storyid=1528
Vefsíða Guðrúnar: www.konurgeta.is |