| Valentínusarkort og kökur |
|
Ég er stödd í Bandaríkjunum, þar sem hefðin með Valentínusarkortin á uppruna sinn og í gær sat sonarsonur minn og skrifaði öllum bekkjarsystkinum sínum Valentínusarkort. Þegar ég svo vaknaði í morgun fékk ég óvænt Valentínusarkort frá honum. Það gladdi mig óumræðilega mikið þótt ég viti að þessi litli drengur elski ömmu sína. Kortið á ég eftir að geyma til minningar um þennan dag, svo og litla hjartalaga boxið sem systkinin færðu mér. Bleikir bangsar, rauðir konfektkassar, rauðar rósir og hjartalaga kökur með orðunum Happy Valentine's fylla hér allar búðir, svo enginn á fara á mis við að geta glatt elskuna sína. Á Íslandi er örugglega margt sem hægt er að kaupa til að gleðja elskuna sína með. Ef engin er gjöfin getur líka innilegt faðmlag og hlýleg ástarorð komið á framfæri skilaboðum um ást og væntumþykju. Lífið er of stutt til að láta sér leiðast - og allt of stutt til að fara á mis við innileg tilfinningatengsl ef við eigum kost á þeim. My Funny Valentine í útgáfu Chet Baker tengist alltaf þessum degi í mínum huga. http://www.youtube.com/watch?v=Ug2LQxOe53Q
|





Valentínusardagurinn er í dag. Vera má að hann hafi ekki alltaf fylgt íslensku samfélagi, en hann veitir okkur kærkomið tækifæri til að segja þeim sem okkur þykir vænt um frá því. Við teljum oft að það sé óþarfi að gera það, af því að þeir sem næstir okkur eru eigi að vita það. En jafnvel þótt við vitum að við séum elskuð af öðrum, lít ég svo á að flestum þyki jafn gott að heyra það - aftur og aftur. Því fylgja alltaf hlýir straumar og hjartatenging sem flestir þrá svo mjög að hafa í lífi sínu.