|
Vísindamenn við Emory háskólann í Bandaríkjunum greindu frá nýlegum rannsóknum sínum í marshefti tímaritsins Archives of Neurology, þar sem þeir fundu fylgni milli skorts á D-vítamíni og fyrstu stiga Parkinson's veiki.
Höfundur greinarinnar Marian L. Evatt, MD, MS frá Emory læknaháskólanum og Læknamiðstöð fyrrum hermanna í Atlanta og félagar hennar halda því fram að: „Vítamínskortur var algengari í sjúklingum með Parkinson's veiki, en í heilbrigðum einstaklingum sem einnig tóku þátt í rannsókninni. Ekki er ljóst hvort það að vera með krónískan sjúkdóm sem dregur úr hreyfigetu valdi þessari frekar háu tíðni.
Í rannsókninni tóku þátt 157 einstaklingar, bæði karlar og konur, með ómeðhöndlaða Parkinson's veiki á frumstigi. Blóðsýni voru tekin bæði við upphaf rannsóknar og eins við lok hennar 13 mánuðum síðar þar sem leitað var eftir magni 25-hydroxyvítamíni D, sem er virki þáttur vítamínsins.
Hátt hlutfall þátttakenda skorti D-vítamín og sumir voru jafnvel með alvarlega skort á því, bæði við upphaf og endi rannsóknarinnar. 69,4% þátttakenda voru ekki með nægilegt magn sem skilgreint er sem minna en 30 nanogrömm per millilíter (ng/mL) við upphaf rannsóknarinnar og 26,1% voru skilgreind með alvarlegan skort á D-vítamíni þar sem þeir voru undir 20 ng/mL. Í lok rannsóknarinnar voru 51,6% þátttakenda ekki með nægilegt magn af D-vítamíni og 7% enn undir skortsmörkum.
Rannsóknir sem hafa verið unnar á Asíubúum hafa leitt í ljós skort á D-vítamíni hjá sjúklingum sem eru lengra gengnir með sjúkdóminn, sem gæti gefið til kynna að langtímaáhrif Parkinson's veikinnar sé að það eyði vítamíninu upp.
„Eftir því sem við best vitum þá er þetta stærsta og besta úrtak sjúklinga með Parkinson's veiki sem rannsakað hefur verið með tilliti til D-vítamínskorts," segja þeir sem rannsókninni stýrðu. „Hún staðfestir að það er algengt að skortur sé á D-vítamíni hjá sjúklingum sem nýlega hafa fengið Parkinson's veikina, einmitt á þeim tíma þar sem ekki er farið að meðhöndla einkenni hennar."
Heimildir: http://www.lef.org/newsletter/2011/0318_Vitamin-D-Insufficiency-Could-Play-Role-Parkinsons-Disease.htm?source=eNewsLetter2011Wk11-2&key=Article&l=0#article og http://archneur.ama-assn.org/ |