“Ég er frábær.”
| OFT VELTIR LÍTIL ÞÚFA... |
|
Guðrún G. Bergmann Máltækið "Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi" kom upp í huga minn í gær. Kannski var hlassið ekki svo þungt, nema þá helst í huganum. Upphafið var eiginlega að vinur minn bauð mér með sér í gönguferð og við röltum um Heiðmörkina í dásamlegri blíðu, tíndum bláber og ræddum um andlegan þroska okkar og þær breytingar sem við erum bæði að ganga í gegnum í eigin lífi. Samræður okkur leiddu til þess að ég sá ákveðið mál sem ég var stöðnuð með í allt öðru ljósi og var mun léttstígari á bakaleiðinni. Dagurinn vatt svo úr sér á undursamlegan máta, með fullt af nýjum tækifærum og áætlunum, sem ég verð að segja að ég er afar spennt fyrir - eiginlega allt vegna þessa eina samtals. Stundum er gott að ræða við vini sína um eigin hindranir, því þeir sjá eða heyra yfirleitt það sem við hvorki sjáum né heyrum sjálf. |



