Náttúran.is
Natturan.is
Kærleikskorn dagsins

Ég set mig auðveldlega í spor annarra til að skilja sjónarmið þeirra.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Ný lífsreynsla

Guðrún G. Bergmann

Skyndilega var fætinum kippt undan mér í orðsins fyllstu merkingu síðastliðinn laugardag og ég komin inn á spítala. Ég var nýkomin frá því að sækja vinkonu mína frá Bandaríkjunum út á flugvöll, en planið var að eyða vikunni saman á ferð um landið. Öllu var hins vegar umsnúið þegar upp kom sýking í ökklalið sem engin skýring finnst ennþá á.

Þótt ég hafi nokkrum sinnum um ævina þurft að dvelja á spítala í lengri eða skemmri tíma, þá er orðið langt um liðið síðan ég var síðast lögð inn. Mikið hef ég þó lært um heilsu og heilbrigði í gegnum árin og þekki líkama minn og skilaboð hans nú betur en ég gerði á árum áður. Því tek ég því sem guðirnir í hvítu sloppunum segja alltaf með ákveðnum fyrirvara og leita yfirleitt eftir áliti frá fleirum, fer eftir eigin innsæi eða les mér til, t.d. á Netinu. Ég spyr líka fleiri spurninga en ég gerði þegar ég var yngri - og náttúrulyfin fylgja mér á spítalann, til að styðja við aðra meðferð.

 

Ég kannaði til dæmis aukaverkanir þess sýklalyfs sem mér er gefið með því að leita á Netinu, en enginn hér á spítalanum ræddi þær við mig. Mér var heldur ekki sagt að ég þyrfti að drekka mikið vatn til að draga úr því álagi sem lyfin leggja á nýrun, en ég vissi það reyndar fyrir og hef haft vatnskönnu hjá mér allan tímann. Svo hef ég auðvitað náð mér í náttúrulyf til að styðja við aðra meðferð. Sonur minn sá um að kaupa fyrir mig Boswelliu og djöflakló til að hjálpa til að draga úr bólgunni, og svo tek ég Omega 3 og D vítamín til að efla ónæmiskerfið og mjólkurþistil til að styrkja lifrina. Vil þó ekki taka of mikið af bætiefnum til að auka ekki enn frekar álagið á lifur og nýru, því þau líffæri hafa nóg að gera sem stendur bara að takast á við sýklalyfin.

 

 

Bæta við athugasemd

Öryggiskóði
Sjá nýjan öryggiskóða

tilvitnun5.png