Náttúran.is
Natturan.is
Krleikskorn dagsins

Ég set mig auðveldlega í spor annarra til að skilja sjónarmið þeirra.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Áhrif hreinsiefna á bakteríur og ónæmiskerfið.

Ég fékk nýlega lánaða á bókasafninu bókina Whole green catalog - 1000 best things for you and the earth.
Ég hef ekki náð að lesa hana alla en endursegi hér kafla sem höfðar sérstaklega til mín. Ég er dagmamma og hjá mér eru 5 lítil börn sem eru oft með hor og setja í munninn leikföng sem koma beint úr munninum á næsta barni. Okkur dagforeldrum er uppálagt að nota handspritt en ég hef það eftir Herdísi Storgaard að góður handþvottur skili svipuðum árangri og notkun á handspritti.

Hjálplegt eða skaðlegt

Bakteríudrepandi sápur og hreinsiefni eru að verða æ vinsælli fylgihlutur við vaska bæði í heimahúsum og á almenningssnyrtingum og fást orðið í öllum matvöru- og rekstarvöruverslunum. Ekki er það vegna þess að það séu fleiri sýklar eða bakteríur en voru fyrir 20 árum, heldur vegna þess að við erum miklu smeykari við þær. Óvíst er þó að bakteríudrepandi sápur og sótthreinsiefni séu besta leiðin til að vernda heilsuna.


Hugsið um eftirfarandi.

1. Margar bakteríur eru góðar og hjálplegar - til dæmis þær sem eru í meltingarveginum. Þær stuðla að heilbrigðri meltingu og upptöku næringarefna og eru ónæmiskerfinu nauðsynlegar. Bakteríueyðandi efni gera engan greinamun og þurrka út jafnt þær góðu sem hinar slæmu.

2. Stöðug notkun bakteríueyðandi efna ruglar ónæmiskerfið okkar. Bakteríur og sýklar eru allstaðar en eiga ekki svo greiðan aðgang að okkur því líkami okkar hefur öflugt varnarkerfi. Engu að síður verður ónæmiskerið okkar latt þegar hversdagsverkin eru unnin fyrir það. Þetta getur orðið stórmál þegar virkilega andstyggilegar bakteríur/veirur mæta til leiks. Ónæmiskerfið þarf að vera í góðri þjálfun til að vera tilbúið til stórátaka ef á þarf að halda.

3. Hversdagsleg, regluleg notkun bakteríudrepandi efna leiðir til myndunar bakteríutegunda sem eru ónæmar fyrir hreinsiefnum og sýklalyfjum. Þegar hefur komið upp að loka þurfi deildum á spítölum vegna slæmra sýkinga. Með tímanum verða okkar mest notuðu sýklalyf máttlaus. Við þurfum sýklalyfin til að takast á við verulega skæðar bakteríur og sýkla svo sem Staphylococcus og E. coli, en ekki fyrir algengar tegundirnar sem finnst á baðherbergjum og í eldhúsum.

4. Rannsóknir sýna sterka fylgni milli ofnotkunar heinsiefna og aukningu á ofnæmi og exemi hjá sumum einstaklingum.

Mæli með þessari bók. Það er allt milli himins og jarðar í henni.

Kveðja

Snædís.

 

Bæta við athugasemd

Öryggiskóði
Sjá nýjan öryggiskóða

tilvitnun7.png