“Ég læri af reynslunni og með þeim lærdómi skapa ég betri framtíð.”
| Kynningar í Bókaverslunum |
|
29.05.09 - Í síðustu viku var Guðrún á Akureyri til að kynna bókina sína KONUR GETA BREYTT HEIMINUM með nýjum lífsstíl. Veðrið lék við Akureyringa þennan dag, en margir litu inn úr sólinni, til að spjalla um efni bókarinnar eða kaupa sér eintak. Hið skemmtilega var að það voru ekki síður karlar en konur sem höfðu áhuga á efni bókarinnar og var einn þeirra á því að við konur ættum að þora að taka meiri ábyrgð, því þá yrði þetta örugglega betri heimur sem við lifum í. Svæðisútvarp Akureyrar greip tækifærið fyrst Guðrún var fyrir norðan og tók við hana viðtal. |





