“Ég get aðeins leitað að þroska fyrir mig, ekki aðra.”
| Frábærar viðtökur |
KONUR GETA BREYTT HEIMINUM með nýjum lífsstíl kom út í dag og fékk strax frábærar viðtökur. Símhringingum til Sölku forlags hefur ekki linnt í dag, m.a. eftir viðtal höfundar við Guðrúnu Gunnars á RÚV í morgun, og þær bókabúðir sem ekki náðist að dreifa til í gær biðu spenntar eftir að fá sínar bækur. Með útgáfu bókarinnar er brotið blað í sögu bókaútgáfu því í fyrsta sinn á Íslandi, og sennilega í heiminum, er bók pökkuð í filmu sem unnin er úr maíssterkju (ekki úr erfðabreyttum maís) og brotnar filman niður í náttúrunni. Salka forlag hefur tekið ákvörðun um að framvegis verði bækur útgáfunnar annað hvort ekki plastpakkaðar eða þeim pakkað í filmu úr maíssterkju. Plastprent er hluti af þessu sögulega vistvæna framfaraspori, því þeir framleiddu filmuna. Umhverfisráðherra Kolbrún Halldórsdóttir mætti í útgáfuhóf í húsakynnum Sölku í Skipholti 50c í dag og sagði meðal annars í ávarpi sínu að bókin kæmi einmitt á réttum tíma og hún hefði fulla trú á því að konur sem væru að eflast mjög, m.a. í stjórnmálum myndu líka verða öflugar í umhverfismálum. Mynd: Hildur Hermóðsdóttir eigandi Sölku Forlags, Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra og Guðrún Bergmann, höfundur KONUR GETA BREYTT HEIMINUM. |




KONUR GETA BREYTT HEIMINUM með nýjum lífsstíl kom út í dag og fékk strax frábærar viðtökur. Símhringingum til Sölku forlags hefur ekki linnt í dag, m.a. eftir viðtal höfundar við Guðrúnu Gunnars á RÚV í morgun, og þær bókabúðir sem ekki náðist að dreifa til í gær biðu spenntar eftir að fá sínar bækur.