Náttúran.is
Natturan.is
Krleikskorn dagsins

Dagurinn í dag er allt sem máli skiptir og ég nota hann vel.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Færði forsetanum eintak
Forseti Íslands með bókina K0NUR GETA BREYTT HEIMINUM, ásamt höfundinum Guðrúnu G. Bergmann.Í framhaldi af útgáfuhófi í Sölku Forlagi í dag, hélt Guðrún G. Bergmann til Bessastaða, þar sem hún færði forseta Íslands, hr. Ólafi Ragnari Grímssyni eintak af bókinni KONUR GETA BREYTT HEIMINUM. Forsetinn hefur fylgst með framþróun verkefnisins frá því það var á byrjunarstigi og hrósaði sérstaklega smekklegri hönnun Blævar Guðmundsdóttur á bókinni.
Jafnframt var hann afar hrifinn af framtaki Sölku að láta pakka bókinni í niðurbrjótanlega filmu úr maíssterkju. Spurði hann meðal annars hvort ekki væri öruggt að starfsfólk bókaverslana myndi láta viðskiptavini vita um þessa sérstöðu pakkningarinnar. Jafnframt lagði hann til að framvegis yrði filman merkt sérstaklega sem niðurbrjótanleg í náttúrunni, en sem stendur er einungis grænt fótspor á henni.

Bókin er prentuð hjá GuðjóniÓ sem er umhverfisvottuð prentsmiðja.

Mynd: Forseti Íslands með bókina K0NUR GETA BREYTT HEIMINUM, ásamt höfundinum Guðrúnu G. Bergmann.
 

Bæta við athugasemd

Öryggiskóði
Sjá nýjan öryggiskóða

tilvitnun1.png