“Ég nota mína innri visku til að ná betri tökum á eigin lífi.”
| 10 fæðutegundir sem sporna við öldrun |
|
Margir hafa áhuga á að leita leiða til að lengja lífið og líða betur. Mataræði er mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni okkar. Því fyrr sem hver og einn temur sér hollt mataræði og reglulega hreyfingu, þeim mun lengra verður það tímabil sem sá einstaklingur upplifir vellíðan og ánægju. Einstaklingar eru mjög mismunandi og því hentar mismunandi mataræði hverjum og einum. Góð þumalputtaregla er þó að borða það sem þér líður vel af, en það þýðir að þú þarft að læra að hlusta á líkamann. Ef þú verður þung og uppþembd af matnum sem þú borðar eru allar líkur á að hann henti þér ekki. Þá er spurning um að velja eitthvað annað næst þegar borðað er. Miklu máli skiptir líka að taka mataræði sitt of alvarlega, því þá fylgir engin gleði því að borða. Líkaminn þarf gleðina og unaðinn til að meltingin haldist glöð Hér er listi yfir 10 fæðutegundir sem eru fullar af andoxunarefnum og hjálpa okkur að vera frískar og flottar • Avókadó- innheldur E-vítamín sem eykur ljóma húðarinnar. • Ber (einkum bláber) – innihalda C-vítamín sem eykur blóðrennsli. • Gulrætur – innihalda beta-karótín og sink sem styrkir húðina. • Sítrusávextir – innihalda fullt af C-vítamíni. • Vínber – innihalda fjölfenól, sem er öflugt þráavarnarefni. • Laukur – inniheldur fullt af seleni sem styrkir ónæmiskerfið. • Papaya – inniheldur öflugt C-vítamín. • Lax – inniheldur nauðsynlegar fitusýrur sem næra húðina. • Spínat – inniheldur E-vítamín, járn, beta-karótín og fólinsýru. • Tómatar – innihalda beta-karótín, sink og B3-vítamín. Morgunverðurinn eða -hristingurinn er mikilvægur og um að gera að bæta einhverju ofangreindu í hann. Aldrei að vita nema mallinn verði glaðari - og þú kannski líka |



