Náttúran.is
Natturan.is
Kærleikskorn dagsins

Með frelsinu vel ég að bera ábyrgð á eigin lífi.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Grilluð bleikja og spergilkál, og spelt eða heilhveiti pasta
Grilluð bleikjaEinföld uppskrift að frábærri máltíð sem fljótlegt er að elda. Bragðið verður enn betra ef bætt er við ferskum kryddjurtum, svo sem steinselju eða graslauk.

Það sem þarf fyrir 4:

4 góð flök af bleikju
7 msk Tamari soja sósa
saxaður engifer eftir smekk
salt og pipar eftir smekk
5 bollar niðurskorið spergilkál (brokkolí)
4 bollar pasta (spelt eða heilhveiti)
Rifinn ostur
¼ bolli sitrónusafi

Eldunaraðferð:

1. Forhitið ofninn í 200°C.
2. Setjið bleikjuflökin á disk eða skál og penslið með 4 msk Tamari sósu sem blönduð er engifer, salt og pipar. Látið liggja í leginum í ca. hálftíma.
3. Setjið spergilkál, 3 msk af Tamari sósu, salt og pipar í stóra skál.
4. Setjið bleikjuna og spergilkálið í ofnskúffu (smyrjið hana fyrst með olíu) og bakið í ofninum í ca. 15 mínutur eða þangað til fiskurinn er ljósbrúnn.

Pastað:
1. Sjóðið vatn, olíu og salt í stórum potti.
2. Setjið pastað í þegar suðan er komin upp.
3. Sjóðið í ca.10 mínutur eða þangað til pastað er mjúkt.
4. Geymið ½ bolla af pasta soðinu.
5. Sigtið vatnið frá og setjið pastað aftur í pottinn.
6. Bætið í ½ bolla af pasta soðinu, rifnum osti, sítrónusafa, spergilkáli og kryddjurtum eftir smekk.
7. Blandið saman.

Skiptið pastanu á 4 diska. Skerið bleikjunni í bita og setjið ofan á. Skreytið með kryddjurtum.

Innkaupalisti:
4 bleikjuflök
Spergilkál
Tamari sósa
Engiferrót
Salt og pipar
Fersk steinselja eða graslaukur
Spelt eða heilhveiti pasta
Sítróna
 
tilvitnun4.png