Náttúran.is
Natturan.is
Krleikskorn dagsins

Ég finn fyrir léttinum sem fylgir því að fyrirgefa mér og öðrum.

©2010 Guðrún G. Bergmann
BLÁBERJABAKA

Úr uppskriftabókum Guðrúnar G. Bergmann:

Ég fékk þessa uppskrift fyrir mörgum árum frá vinkonu minni Sigrúnu Oddsdóttur. Þótt ég hafi víða fengið bláberjabökur síðan þá, hefur þessi alltaf haft vinninginn þegar kemur að gæðum og bragði.

Bökuskel:
1 kassi Grahams (Haust) kex
100 gr brætt smjör (nota gjarnan smjörva)

1) Kexið mulið í matvinnsluvél eða í plastpoka, sem kökukefli er rúllað yfir.
2) Bræddu smjörinu blandað saman við kexmylsnuna.
3) Blöndunni þjappað í botn á bökuformi eða í botn á spring-formi, en þá er gott að setja bökunarpappír í botninn.
4) Bakið við 175°C í ca 10-15 mínútur eða þar til skelin er stökk.
5) Kælið.

Fylling:
1 bolli sýrður rjómi 18%
1 box rjómaostur (lítið)
2 eggjarauður
1 1/2 bolli bláber (mega vera frosin)
3/4 bolli hrásykur

1) Þeytið saman sýrðan rjóma, rjómaost og eggjarauður.
2) Bætið hrásykrinum út í þeytið þar til blandan er létt og hvítleit.
3) Bætið bláberjunum út í með sleif.
4) Hellið fyllingunni í kældan bökubotninn.

Marengs:
2 eggjahvítur
4 msk. hrásykur
2 msk. valhnetukjarnar
1-2 tesk vanilludropar

1) Þeytið saman eggjahvítur og hrásykur, þar til blandan er nokkuð stíf.
2) Bætið vanilludropunum út í og þeytið aðeins saman. 
3) Myljið valhnetukjarnana og setjið út í marengsinn.
4) Smyrjið marengsnum ofan á fyllinguna.
5) Bakið marengsinn við 200°C í 10 mínútur.

Kælið kökuna og frystið hana a.m.k. yfir nótt - en það má auðvitað frysta hana í lengri tíma.
Takið hana úr frysti svona klukkustund áður en á að nota hana. Mér finnst hún best ef örlítið frost er enn í henni. Bera má hana fram eina sér eða með þeyttum rjóma - og hún bókstaflega "bráðnar" í munninum á manni með heitu tei eða góðu lífrænt ræktuðu kaffi.

 
tilvitnun3.png