“Hamingjan fylgir mér hvert fótmál í dag.”
| Matarmikil linsubaunasúpa |
Þessi yndislega súpa er full af næringu, linsubaunum og grænmeti, þar á meðal sveppum, spínati, lauk og hvítlauk. Nýbakað brauð myndi setja punktinn yfir i-ið á þessari kjarngóðu máltíð.Innihald fyrir 4-6: ¼ bolli extra virgin ólífuolía ½ bolli niðurskornar gulrætur ½ bolli niðurskorið sellerí ½ bolli laukur 3 hvítlauksrif 1 box sveppir niðurskornir 1 bolli gular, brúnar eða grænar linsubaunir (mælt með grænum eða brúnum þar sem þær eru stærri og matarmeiri) 5 bollar vatn 1 teningur grænmetiskraftur 1 bolli niðurskornir tómatar ( einnig hægt að notast við 1 dós af niðursoðnum tómötum) 1 bolli rauðvín helst þurrt ( má sleppa) smávegis af rauðum piparflögum 2 bollar spínat ( frosið eða ferskt) ½ tsk salt ½ tsk svartur pipar 1 tsk niðurskorið blóðberg (eða ferskt timian) skreytt með Parmesan osti Til að gera súpuna enn bragðmeiri má skera niður í hana eina ítalska (eða pólska) pylsu, en það er ekki nauðsynlegt. Ítölsk pylsa er krydduð svínapylsa. Eins má nota grænmetispylsur eins og fást í heilsubúðunum. Eldunaraðferð: 1. Hitið olíuna í stórum potti. 2. Steikið lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerí í olíunni þar til laukurinn er mjúkur og gullinbrúnn. 3. Ef þið viljið hafa pylsu í súpunni er henni bætt næst í pottinn. 4. Bætið við sveppum og leyfið þeim að malla þar til þeir hafa losað mestan vökvann. 5. Bætið linsum, vatni, grænmetiskrafti, tómötum, víninu og piparflögunum í pottinn. 6. Setjið lok á pottinn og leyfið suðunni að koma upp. Lækkið hitann og leyfið að malla þangað til linsurnar eru orðnar mjúkar. Ef þið viljið þynnri súpu bætið þá við meira vatni. 7. Þegar linsurnar eru orðnar vel mjúkar, bætið við spínati, salti og pipar. Leyfið að malla í 2-3 mínútur áður en þið bætið við blóðberginu. 8. Berið súpuna fram vel heita og stráið Parmesan ostinum yfir. Nýbakað heimabakað brauð eða gróft brauð frá bakaranum fullkomnar máltíðina Innkaupalisti: Brúnar linsur Grænar linsur Ólífuolía Ferskir eða niðursoðnir tómatar Ítölsk kryddpylsa eða grænmetispylsa Gulrætur Sellerístönglar Laukur Hvítlaukur Box af sveppum Grænmetiskraftur Matreiðslurauðvín – má sleppa Rauðar piparflögur Spínat Blóðberg úr náttúrunni eða ferskt timian úr búð Salt og pipar Parmesan ostur |




Þessi yndislega súpa er full af næringu, linsubaunum og grænmeti, þar á meðal sveppum, spínati, lauk og hvítlauk. Nýbakað brauð myndi setja punktinn yfir i-ið á þessari kjarngóðu máltíð.