Náttúran.is
Natturan.is
Krleikskorn dagsins

Ég rækta samskipti mín við aðra og þau dafna vel.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Kjúklingabauna Pottréttur frá Eþíópíu
Kjúklingabauna pottréttur frá EþíópíuAnnað hvort má nota kjúklingabaunir eða venjulegar gular baunir. Auðveldar matreiðsluna. Kryddin gera pottréttinn einstakan. Þennan rétt kalla Eþíópíubúar “Berber” pottrétt.

Það sem þarf fyrir 6:

1 tsk papriku duft
1 tsk salt
½ tsk malaðar möndlur
½ tsk svartur malaður pipar
½ tsk malaðar kardemommur
½ tsk malaður negull
½ tsk malað koríander
¼ til ½ tsk cayenne pipar
¼ tsk fennelduft
½ tsk malaður engifer
2 dósir niðursoðnar kjúklingabaunir
3 matsk extra virgin olífuolía
2 hvítlauksrif (afhýdd og söxuð)
1 rauðlaukur
1 stk ferskur engiferrót ( afhýdd og söxuð)
1 dós niðursoðnir tómatar
2 bollar vatn
1 teningur grænmetiskraftur
4 gulrætur (afhýddar og saxaðar)

Eldunaraðferð:

1. Forhitið ofninn í 200°c.
2. Byrjið á því að blanda kryddinu saman; paprika, salt, svartur pipar, kardemommur, negull, kóríander, cayenne pipar, fennill og engifer er sett í litla skál og hrært saman.
3. Leggið til hliðar.
4. Blandið 1 msk af ólífuolíunni við kjúklingabaunirnar. Setjið baunirnar á bökunarpappír á bökunarplötu í ofninn í 16-18 mínútur eða þangað til þær verða gullbrúnar. (Þetta er ekki nauðsynlegt þar sem hægt er að setja baunirnar beint úr dósinni í réttinn ef verið er að flýta sér).
5. Setjið 2 msk af ólívu olíu í pott og hitið.
6. Setjið hvítlauk, rauðlauk og saxaðann engifer út í og hitið þar til blandan er gullinbrún eða í ca. 8-10 mínútur.
7. Bætið kryddblöndunni í pottinn.
8. Hitið áfram í ca. 2 mínútur.
9. Bætið niðursoðnu tómötunum við og hitið í 2 mínútur til viðbótar.
10. Bætið við vatni, grænmetiskrafti, gulrótum og kjúklingabaunum. Látið suðuna koma upp.
11. Eftir það er gott að minnka hitann og leyfa þessu að malla þangað til kartöflur og gulrætur eru orðnar mjúkar, eða í ca. 20 mínútur.
12. Takið þá lokið af og látið réttinn malla áfram þar til sósan þykknar aðeins, eða í ca. 20 mínútur til viðbótar.

Gott er að hafa Naan brauð með þessum rétti.

Innkaupalisti:
2 dósir niðursoðnar kjúklingabaunir
1 dós niðursoðnir tómatar
Gulrætur
Kartöflur
Ólífuolía
Engiferrót
Möndlur
Rauðlaukur
Hvítlaukur
Grænmetiskraftur
Krydd: Salt og pipar, Engiferduft, Fennelduft, Cayenne pipar, Negull, Kóríander, Kardimommur


 
tilvitnun4.png