Náttúran.is
Natturan.is
Krleikskorn dagsins

Ég hef tíma til að gera allt sem mig langar að gera.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Uppskriftir Guðrúnar
Pítsudeig

Grunnurinn að þessu pítsudeigi kemur úr bókinni RÉTT MATREIÐSLA FYRIR ÞINN BLÓÐFLOKK eftir Dr. Peter J. D´Adamo.

1 matskeið þurrger - eða 3 teskeiðar vínsteinsduft
1 bolli volg vatn - kannski aðeins minna ef notað er vínsteinsduft
2 1/2 - 3 bollar speltmjöl - 1 1/2 bolli gróft spelt og 1 1/2 bolli sigtað fínt spelt
2 matsk. ólífuolía
tæp tesk. af salti
ólífuolía fyrir skálina ef þurrger er notað

Leiðbeiningarnar miðast við þurrgersnotkun:
1. Leystu gerið upp í volgu vatni í stórri deigskál.
2. Bættu 1 1/2 bolla af mjöli saman við og hrærðu saman með stórri sleif.
3. Bættu olíu, salti og því sem eftir er af mjölinu við og hnoðaðu saman.
4. Settu deigið á borðplötu sem stráð er mjöli og hnoðaðu í 5 mínútur eða svo.
5. Þvoðu deigskálina og smyrðu hana með ólífuolíu að innan.
6. Settu deigið í skálina og snúðu því einu sinni, svo það sé olía á því öllu.
7. Leggðu hreint viskastykki yfir og láttu deigið lyfta sér í eina klukkustund.
8. Þegar deigið hefur tvöfaldast að stærð, sláðu það þá niður og skiptu því í tvo hluta.
9. Hnoðaðu deigið augnablik á flötu yfirborði og settu það svo til hliðar á bökunarpappír í ca 15 mínútur.
10. Hitaðu ofninn í 250° C.
11. Stráðu maísmjöli á bökunarpappír eða í kringlótt pítsuform svo pítsan festist ekki.
12. Flettu pítsudeigið út og settu á bökunarpappír eða í form. Penslaðu með olíu og settu sósu og álegg á pítsuna.

Fyrir barnaafmæli er frábært að skera út litlar pítsur með glasi, setja á þær lífræna tómatsósu úr heilsuvörubúð og strá osti - eða sojaosti - yfir og kannski krydda örlítið með oregano. Börn kunna að meta litlar pítsur sem þessar og eiga auðveldar með að borða þær. 

 
Súkkulaðikaka

Úr uppskriftabókum Guðrúnar Bergmann
Ég hef í mörg ár sagt að leiðin að hjarta mannsins liggi í gegnum góða súkkulaðiköku. Þeir þrír sem aðallega hafa verið í mínu lífi, þ.e. synir mínir tveir og eiginmaður heitinn hafa alltaf getað rennt þessari niður með bestu lyst, jafnvel eftir að ég skar niður í henni sykurmagnið og breitti yfir í speltmjöl. Upprunalega uppskriftin kom frá Hrafnhildi mágkonu minni, en ég hef aðlagað hana aðeins í tímans rás. Uppskriftin er frekar stór og má annað hvort gera úr henni skúffuköku eða setja hana í form. Þá hef ég hana yfirleitt bara einfalda með kremi.

2 bollar gróft speltmjöl
1 1/2 bolli fínt (malað) speltmjöl
1 1/2 bolli hrásykur
2 bollar súrmjólk, ab mjólk eða hrein jógúrt
1 bolli (ca 200 gr) bræddur smjörvi
2 tesk. vanilludropar (fást líka í heilsuvörubúðum)
2 tesk. matarsódi
1 tesk. salt
4 matsk. lífrænt kakó
4 egg - ég nota gjarnan brún egg

Aðferð við bakstur:
1. Öll þurrefnin sett í hrærivélarskál.
2. Smjörvinn bræddur og honum hellt út í, ásamt vanilludropum.
3. Eggjunum bætt saman við, svo og súrmjólkinni.
4. Allt hrært vel sama í svona 3 mínútur.
5. Bakað í forhituðum ofni við 175°C í 20-30 mínútur eftir því hvort bakað er í skúffu eða formi.

Krem á kökuna - upprunaleg uppskrift:
1-2 egg
350 gr. flórsykur
150 gr. mjúkt smjör
1/2 tesk. salt
3 matsk. lífrænt kakó

Krem á kökuna - útfærsla með öðru sætuefni:
1-2 eggjarauður
1- 1 1/2 dl. agave síróp
150 gr. mjúkt smjör
1/2 tesk. salt
3 matsk. lífrænt kakó

Aðferð:
1. Þeytið saman sætuefnið (sigtið flórsykurinn vel) og smjörið þar til það er létt.
2. Bætið eggjum (eða eggjarauðum) saman við og þeytið vel.
3. Sigtið kakó og bætið því útí ásamt saltinu.


 

 
RABBABARA- OG BERJASULTA

Guðrún G. Bergmann

Góða veðrið og fullt af berjum hafa ýtt við mér að draga fram gamlar uppskriftir. Þessi sulta er frábær ef þú átt frosinn rabbabara eða síðari uppskeru sumarsins af honum úti í garði og átt annað hvort eitthvað af berjum eða ætlar að tína þau næstu daga.

Þú ræður sjálf/-ur hversu  mikið þú notar af innihaldinu en gætir þess bara að hlutföllin haldi sér.

2 hlutar af hreinsuðum, skornum rabbabara
1 hluti af krækiberjum eða bláberjum - eða blanda af báðum tegundum
3 hlutar hrásykurs hljómar gamla uppskriftin - en ég myndi bara hafa 2 hluta hrásykurs

1. Allt sett í pott og soðið í 75 mínútur.
2. Sultan hökkuð til að hún verði jafnari. 
3. Hitið sultuna aðeins aftur áður en hún er sett á krukkur.

Dásamleg a speltvöfflur eða ristað speltbrauð - gjarnan með norskum geitaosti.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

tilvitnun2.png