Náttúran.is
Natturan.is
skraut16.jpg
Kærleikskorn dagsins

Sérhver endir er upphaf að einhverju nýju.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Hugmyndir og ráð
Grænir punktar.

skraut2Hér er listi yfir ýmislegt sem er með góðu móti hægt að gera til að spara orku, aura og vera jafnframt góður við jörðina okkar. Það er eflaust margt fleira sem má vera á þessum lista svo endilega verið þið með í gera okkur grænni og sendið okkur fleiri atriði :o)

Kveðja Snædís.

 
Vor í huga.

Vor í hugaNú er hægt að skrifa sig á lista fyrir grænmetisgarð hjá Reykjavíkurborg og eflaust þá líka hjá öðrum sveitafélögum, svo nú er lag að skrá sig. Það eru 100 fm garðar í Skammadal og 18 fm blettir hér og þar um borgina. Blómaval er með ókeypis námskeið næstu fimmtudaga um ýmislegt sem varðar ræktun og ég hvet fólk til að láta verða af því að rækta sitt eigið grænmeti. Ég hef haft áhuga í mörg ár og finnst mjög gaman að prófa mig áfram. Það verður enginn meistari strax, best að byrja á einhverju auðveldu og gera svo tilraunir með viðkvæmari tegundir.

Líka er tilvalið að stinga 5 salatfræjum í pott í eldhúsgluggann og svo jafnmörgum í annan e.t.v viku seinna og eiga þannig alltaf fersk salatblöð.Einnig er til ótrúlegt úrval af spennandi kryddjurtum sem er tilvalið að rækta í eldhúsglugganum og hafa þær ferskar við hendina. Fyrir þá sem eru ekki alltaf heima til að vökva þá er ráð að setja blómapottinn á "pall" í bala sem er með vatni í, setja svo tusku undir pottinn og ofaní vatnið þá helst moldin rök. Mæli kannski frekar með leirpotti í svona vökvunarkerfi.

Gangi ykkur vel :o)

Kveðja; Snædís

 
Kókosolía - allra meina bót

coconut_oilÉg er mjög hrifin af kókoslykt og fór fyrir nokkrum árum að nota kókosolíuvörur bæði á húð og hár. En í seinni tíð þá hef ég bara notað olíuna eins hreina og hráa og ég finn hana. Það er hægt að kaupa lífræna kókosolíu í krukku í öllum heilsubúðum (og jafnvel í bónus) en þetta er örugglega ein ódýrasta og öflugasta húð- og hárvara sem þú getur fengið.

Hér er hægt að lesa allt um kókosolíu og hvað hún er holl og græðandi. Hún læknar marga kvilla og hana má bera á exem, psoriasis, í hársvörðinn til að losna við flösu o.sv.fr.v.

 
Egg í hárið.

Vistvænn hármaski

Það er sitthvað sem konur (og stöku menn) hafa gert í gegnum tíðina til að halda hárinu glansandi og fallegu. Eitt af þessu er að nota egg til að styrkja það og gefa því góða innspýtingu af próteinum. Snilldar ráð og vissulega eitthvað sem kemur sér vel fyrir budduna.

Pískaðu saman einu eggi með pínu slettu af góðri olíu (ólífu t.d.) og berðu þetta í endana á hárinu, eða frá eyrum og niður. Láttu maskann bíða í 15-30 min, án þess að hylja hárið og skolaðu svo úr með tveimur umferðum af freyðandi sjampói. Sleppa næringu í lokin.

Þetta er fínt að gera endrum og sinnum, eftir þörfum og best  í sítt og ómeðhöndlað hár.

Fann þetta snilldar ráð á pjattrofur.eyjan.is hef gert þetta og finnst það virka mjög vel :o)

Kveðja; Snædís

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

tilvitnun5.png