Krleikskorn dagsins

Ég vel mér lifnaðarhætti sem fara vel með líkama og sál.

©2010 Guðrún G. Bergmann
Konur geta
Alþjóðlegur dagur kvenna

Í dag, 8. mars 2011, er haldið upp á það að 100 ár eru síðan stofnað var til Alþjóðlegs dags kvenna. Í sögu kvenna og baráttu þeirra fyrir jafnrétti, kosningarrétti, jafnræði til erfða og réttar innan samfélagsins hefur margt áunnist á þessum árum. Við sem njótum menntunarmöguleika og atvinnutækifæra á við karlmenn eigum oft erfitt með að gera okkur grein fyrir því að mæður okkar, hvað þá ömmur og langömmur gengu ekki í skóla og sumar höfðu ekki einu sinni tækifæri til að læra að lesa. Móðir mín var sú eina af fimm systrum sem stundaði eitthvað nám fram yfir skyldunám og þó varð hennar nám ekki lengra en Kvennaskólanám.

Mér ef efst í huga þakklæti til þeirra kvenna í minni ætt sem hafa barist fyrir jöfnum rétti kvenna til launa, tækifæra, mennta og kosninga, svo og allra annarra kvenna sem gerðu slíkt hið sama. Þær lögðu á sig mikla vinnu og höfðu kjark til að ráðast gegn ríkjandi hugmyndum um stöðu kvenna og knýja fram breytingar. Þær fóru í verkföll og kröfugöngur, sátu samningafundi og potuðu málefnum sínum áfram smátt og smátt, svo ég og mín kynslóð geri notið þeirra réttinda sem okkur þykja svo eðlileg í dag.

Í mínum huga snýst verkefni núverandi kynslóða og þeirra sem á eftir kemur um að vernda náttúru okkar og umhverfi, ekki bara fyrir jörðina - heldur vegna þess að mengun og umhverfisspjöll hafa áhrif á líkama okkar og heilsu, ekki síður en á jörðina sjálfa. Þar tel ég að konur muni leiða veginn, ekki vegna þess að ég vilji kyngreina umhverfismál og skilning okkar á sjálfbæru samfélagi, heldur vegna þess að konur eru yfirleitt fljótari til að tileinka sér nýjungar og gera breytingar samhliða þeim.

 
Áhrif hreinsiefna á bakteríur og ónæmiskerfið.

Ég fékk nýlega lánaða á bókasafninu bókina Whole green catalog - 1000 best things for you and the earth.
Ég hef ekki náð að lesa hana alla en endursegi hér kafla sem höfðar sérstaklega til mín. Ég er dagmamma og hjá mér eru 5 lítil börn sem eru oft með hor og setja í munninn leikföng sem koma beint úr munninum á næsta barni. Okkur dagforeldrum er uppálagt að nota handspritt en ég hef það eftir Herdísi Storgaard að góður handþvottur skili svipuðum árangri og notkun á handspritti.

Hjálplegt eða skaðlegt

Bakteríudrepandi sápur og hreinsiefni eru að verða æ vinsælli fylgihlutur við vaska bæði í heimahúsum og á almenningssnyrtingum og fást orðið í öllum matvöru- og rekstarvöruverslunum. Ekki er það vegna þess að það séu fleiri sýklar eða bakteríur en voru fyrir 20 árum, heldur vegna þess að við erum miklu smeykari við þær. Óvíst er þó að bakteríudrepandi sápur og sótthreinsiefni séu besta leiðin til að vernda heilsuna.

 
Vor í huga.

Vor í hugaNú er hægt að skrifa sig á lista fyrir grænmetisgarð hjá Reykjavíkurborg og eflaust þá líka hjá öðrum sveitafélögum, svo nú er lag að skrá sig. Það eru 100 fm garðar í Skammadal og 18 fm blettir hér og þar um borgina. Blómaval er með ókeypis námskeið næstu fimmtudaga um ýmislegt sem varðar ræktun og ég hvet fólk til að láta verða af því að rækta sitt eigið grænmeti. Ég hef haft áhuga í mörg ár og finnst mjög gaman að prófa mig áfram. Það verður enginn meistari strax, best að byrja á einhverju auðveldu og gera svo tilraunir með viðkvæmari tegundir.

Líka er tilvalið að stinga 5 salatfræjum í pott í eldhúsgluggann og svo jafnmörgum í annan e.t.v viku seinna og eiga þannig alltaf fersk salatblöð.Einnig er til ótrúlegt úrval af spennandi kryddjurtum sem er tilvalið að rækta í eldhúsglugganum og hafa þær ferskar við hendina. Fyrir þá sem eru ekki alltaf heima til að vökva þá er ráð að setja blómapottinn á "pall" í bala sem er með vatni í, setja svo tusku undir pottinn og ofaní vatnið þá helst moldin rök. Mæli kannski frekar með leirpotti í svona vökvunarkerfi.

Gangi ykkur vel :o)

Kveðja; Snædís

 
CANDIDA LAUSNIR

Guðrún Bergmann skrifar:

Margir vilja fá sértækar launsir þegar kemur að Candida sveppasýkingu og leita eftir aðstoð og ráðleggingum með fæðuplan, æfingaáætlun, helstu bætiefni sem gott er að taka inn og þá hvenær sólarhrings og svo framvegis. Þeir sem hafa áhuga á slíkri þjónustu geta haft samband við mig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

CANDIDA SVEPPASÝKING, bók okkar Hallgríms Magnússonar er nú í 5. sæti metsölulista Eymundsson, en hún hefur verið á listanum í einar 7 vikur, oftast í fyrsta eða öðru sæti. Það er ánægjulegt að finna hversu mikinn áhuga fólk hefur á að taka ábyrgð á eigin heilbrigði og skapa sér bætta heilsu og betra líf.

 
Rúgbrauð

Þetta brauð er mjög vinsælt á mínu heimili. Ég læt oft einn bauk af Agave sýrópi (425g) duga í uppskriftina til að hafa hana dálítið hollari.

2 bollar heilhveiti
4 bollar rúgmjöl
1 líter súrmjólk
500g sýróp
3 tsk matarsódi
3 tsk salt

Öllu hrært saman og sett í mjólkurfernur, mackintosh dós eða í steikarpottinn með bökunarpappír undir og yfir. Bakað við 100 gráður í 9 stundir.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

tilvitnun5.png